Fylgi ríkisstjórnarflokka eykst eftir skuldaniðurfellingu

Bæði Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur auka fylgi sitt frá því í októ­ber, sam­kvæmt nýrri skoð­anna­könnun Frétta­blaðs­ins. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fer úr 30,3 pró­sentum 32,9 pró­senta fylgi. Það þýðir að flokk­ur­inn myndi fá 22 þing­menn kjörna ef kosið væri nú, eða þremur fleiri en í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir örlítið við sig á milli kann­anna. Hann mæld­ist með 8,7 pró­senta fylgi í októ­ber en fengi nú 12,8 pró­sent. Flokk­ur­inn er langt frá kjör­fylgi sínu því hann fékk 24,4 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum. Þing­mönnum hans myndi því fækka úr 19 í níu ef kosið yrði nú.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir kynntu nið­ur­stöðu Leið­rétt­ing­ar­innar, aðgerð­ar­á­ætl­unar hennar í skulda­málum þeirra heim­ila sem voru með verð­tryggð lán, í byrjun síð­ustu viku. Leið­rétt­ingin var stærsta kosn­inga­lof­orð Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar.

Samfylkingin næst stærsti flokkurinn


Samkvæmt könnun Frétta­blaðs­ins yrði Sam­fylk­ingin næst­stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði í dag.Hún fengi 19,2 pró­sent atkvæða og tólf þing­menn, sem er þremur fleiri en í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum.

Björt Framtíð fengi 12,5 pró­sent atkvæða, Vinstri-græn 9,7 pró­sent og Píratar 9,2 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár