Ísland tapaði 2-1 fyrir sterkum Tékkum

Íslenska karla­lands­liðið í fót­bolta tap­aði fyrir Tékkum í kvöld, 2-1, á Doosan leik­vang­inum í Plzen. Tékkar voru mun sterkara liðið allan leik­inn og gerðum Íslend­ingum lífið leitt með stífri pressu. Íslenska lið­inu gekk illa að halda bolt­anum innan liðs­ins, en byrj­uðu leik­inn þó vel og komust yfir með marki Ragnars Sig­urðs­sonar á 9. mín­útu leiks­ins.

Eftir það pressuðu Tékkar stíft það sem eftir var af fyrri hálf­leiknum og tókst að jafna á síð­ustu mín­útu fyrri hálf­leiks með skalla frá Pavel Kader­á­bek. Ísland fékk síðan á sig skelfi­legt sjálfs­mark á 61. mín­útu þegar bolt­inn fór af Jóni Daða Böðv­ars­syni, í Hannes Þór Hall­dórs­son mark­vörð og þaðan í netið.

Gylfi Sig­urðs­son var nærri búinn að jafna fyrir Ísland en skot hans fór í stöng­ina. Jóhann Berg Guð­munds­son fékk síðan algjört dauða­færi undir lok leiks­ins en Petr Cech, vara­mark­vörður Chelsea, sá við honum.

Ísland er nú í 2. sæti rið­ils­ins á eftir Tékkum með 9 stig, en Tékkar hafa fullt hús stiga, 12 stig. Hol­lend­ingar, sem unnu Letta í dag 6-0, eru í þriðja sæt­inu með 6 stig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár