Fjöldi kvenna miðað við karla í heimi nýsköpunar hefur ávallt verið nokkuð lítill. En það þýðir samt ekki að þær eigi minni möguleika á velgengni eða að hugmyndaauðgi þeirra sé eitthvað verri en karla.
Hjá Product Hunt hefur verið tekinn saman listi yfir vörur sem hannaðar og framleiddar eru af konum. Eru þar margar stórkostlegar hugmyndir sem maður getur vel hugsað sér að verði orðnar skyldueign allra á næstu árum. Hér að neðan fer listi yfir álitlegustu hugmyndirnar á listanum.
Þráðlaus hleðsla fyrir allt
[embed]http://www.youtube.com/watch?v=ukgnU2aXM2c[/embed]
Meredith Perry var föst á fyrirlestri í háskólanum sínum með batteríslausa fartölvu og ekkert hleðslutæki þegar hún áttaði sig á að úr svona aðstæðum mætti komast með einfaldri lausn. uBeam varð til en það losar alla undan mest óþolandi hluta nútímans: hleðslutækjum. Með úthljóðum hleður uBeam farsíma og -tölvur þráðlaust. uBeam hefur fengið 13,2 milljónir bandaríkjadala í fjármögnun.
Sjálfvirkur skipuleggjari
Hver á ekki í endalausu basli við að koma öllum verkefnum dagsins fyrir á einum degi? Clara Labs er sjálfvirkt kerfi sem virkar eins og stafrænn aðstoðarmaður þinn. Clara Labs hjálpar þér að skipuleggja fundi og flokkar póstinn þinn fyrir þig. Maran Nelson er einn stofnenda fyrirtækisins sem hefur hlotið mikið hól, þrátt fyrir að hafa enn ekki fjármagnað verkefnið að fullu.
Fullkominn brjóstahaldari
Michelle Lam er búin að finna upp hinn fullkomna brjóstahaldara. Fyrirtæki hennar True&Co býður konum upp á að fylla út spurningalista á vefsíðu sinni og að því loknu er hægt að kaupa brjóstahaldara sem passar fullkomlega. Teymi Lam hefur nefnilega búið til algrím sem reiknar út bestu stærðir og laganir brjóstahaldara fyrir hvern viðskiptavin, með því að nota gögn frá meira en milljón konum.
True&Co hefur fengið sex milljónir dala í fjármögnun síðan 2012.
Nýsköpun í bókhaldi
[embed]http://www.youtube.com/watch?v=KWwZmYm4CLY[/embed]
inDinero er fyrirtæki Jessica Mah sem hjálpar til við bókhald og launagreiðslur fyrir smærri fyrirtæki. Fyrirtækið hefur fengið 1,2 milljónir bandaríkjadala í þremur hlutafjáraukningum.
Wanelo
[embed]http://www.youtube.com/watch?v=fsX9WnA82xk[/embed]
Með vöru Deena Varshavskaya má versla í meira en 350.000 verslunum í gegnum eina gátt í snjallsímanum þínum. Wanelo hefur fengið 14 milljónir dala í fjármögnun frá þekktum fjárfestum.
theSkimm
Fréttakonurnar Danielle Weisberg og Carly Zakin (á mynd með frétt) stofnuðu theSkimm eftir að hafa sagt upp störfum hjá NBC-sjónvarpsstöðinni. theSkimm er daglegt fréttabréf sem berst til áskrifenda alla morgna með helstu fréttum dagsins. Þær hafa þegar aflað 1,6 milljónir dala til að fjármagna reksturinn.
Hopscotch
Jocelyn Leavitt og Samantha John stofnuðu Hopscotch árið 2011 með það fyrir augum að kenna börnum að skrifa kóða og forritunarmál án þess að það verði íþyngjandi eða erfitt. Hopscotch er einnig fyrsta forritunarmálið sem hannað er fyrir farsíma. Leavitt og John hafa fengið 1,2 milljónir dala í fjármögnun.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir