Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Belfast

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Klukkan er 2.58. Hér er partý, hinar rút­urnar eru farnar og við þeir einu sem hafa ákveðið að hafa næt­ur­setu. Þessi dagur var ekk­ert minna en alger­lega stór­kost­legur! Þessi færsla rit­ast eins og hún kemur. Ég tek um það bil 75% ábyrgð á því sem á eftir fer.

[caption id="attachment_12116" align="alignleft" width="200"] Tón­list­ar­kenn­ar­inn Gunnar Ben, fylgist hér með stöðu mála.[/caption]

Árið 2011 var fyrsta árið sem Skálmöld túraði af ein­hverri alvöru um Evrópu. Þá ferð­uð­umst við með 5 öðrum böndum og mynd­uðum tengsl sem rofna seint. Eitt af þessum böndum var Finn­troll, með þeim túruðum við aftur í fyrra og eftir það fengum við lung­ann af þeim félögum í heim­sókn til Íslands. Bara svona í frí. Það var gaman. Annað band af þeim túr var Arkona sem við erum svo aftur að túra með núna. Rússar af bestu gerð, gefa ekki mikið af sér við fyrstu kynni en svo miklu mun meira eftir því sem á líður. Eftir því sem lengra dregur á þennan túr sýna þau af sér svo mik­inn höfð­ings­skap að mann setur hálf­hljóðan. Svip­leysi og hæg­lyndi eru vissu­lega þeirra ær og kýr en þegar á reynir er þetta fólk sem meinar það sem það segir. Það fáa sem það segir.

Þriðja bandið sem við kynnt­umst á umræddum túr árið 2011 var sjó­ræn­ingja­metal­bandið Alestorm. Þar fara fimm drengir sem finnst gaman að vera í hljóm­sveit. Okkur kom óskap­lega vel saman þá en höfum ekki hist síðan. Okkur bassa­leik­ara band­ins kom alveg sér­lega vel saman og við höfum haldið sam­bandi. Sá heitir Gareth, gengur dags dag­lega undir gælu­nafn­inu Gazz, og er búsetur í Belfast. Og þar spil­uðum við einmitt í dag. Gazz hafði spottað það fyrir mörgum vikum að hér myndum við spila í dag, löngu á undan mér. Hann sendi mér línu yfir alnetið þá um leið og lof­aði mér að hann skyldi sýna alla sína mögu­legu gest­risni er við kæmum hingað. Og við það stóð hann. Heldur betur.

Ferju­ferðin yfir til Norður-Írlands var svo sem tíð­inda­laus. Við þurftum auð­vitað að rífa okkur úr koju á afskap­lega ólík­legum tíma til þess eins að sitja upp­réttir á leið yfir. Ferðin tók kannski tæpa 3 tíma, sjó­veður alls ekki frá­bært, en vit­an­lega löð­ur­mann­legt verk­efni fyrir jafn­sjó­aðan hvala­skoð­un­ar­gæd og mig sjálfan. Ekki er ég viss um að alvöru sjó­menn myndu gefa mikið út á þessa sjó­reynslu mína, en ég taldi mig þó fremur hressan meðan aðrir hálf­móktu í sæt­unum. Um leið og ferjan snerti land kastaði ég mér í koju og reyndi að græða eins mik­inn svefn og ég gat.

Vekjara­klukkan hringdi um hálf12 og ég náði að rífa mig á lappir um 20 mín­útum seinna. Ég var alveg hel­ryðg­aður en lagði ótrauður í hann og rölti stefnu­laust til að finna net­kaffi og þannig sam­band við Gazz. Ég tók fyrst hægri beygju og síðan vistri. Þar fann ég hrað­banka fyrir slysni og var þá enn að remb­ast við að opna augun. Pen­ing­arnir runnu út úr mask­ín­unni, ég reif þá úr rauf­inni, pakk­aði í veskið mitt og tók slembi­stefnu til vinstri. Og þá sé ég Gazz. Bara svona rölt­andi eftir gang­stétt­inni. Við höfðum jú ætlað að hitt­ast, en til Belfast hef ég aldrei komið, og reyndar aldrei til Norður-Írlands, og vissi ekk­ert hvar ég var. Þessir end­ur­fundir voru sér­lega sætir.

Dagurinn í dag fór svo bara í að skoða þessa stór­fal­legu borg. Það er ótrú­legt að ímynda sér að fyrir svo óskap­lega stuttu síðan hafi geysað stríðs­á­stand. Við fengum svona snar­túr um umhverfið, sáum hvar Titanic hafið var byggt á sínum tíma og alls­konar. Þetta tók pass­legan tíma, og svo fórum við á pöbb­inn. Þar drukkum við, rifj­uðum upp sögur og bjuggum til nýjar. En ég er að gleyma einu.

[caption id="attachment_12118" align="align­right" width="167"] Við lit­ríkan vegg.[/caption]

Á leið niður í bæ komum við við heima hjá Gazz og þar settum við í vél. Sjálf­sögð þæg­indi á borð við þvotta­vélar og þrifa­að­stöðu verða að vinum í eyði­mörk­inni á svona túrum. Plast­pok­inn sem ég hef verið að safna í frá byrjun var óþægi­lega þungur, og mest af svita. Ógeðs­legum svita. Gazz býr með vin­konu sinni og hún tók á sig að þvo og þurrka af okkur í dag. Ef ég ætti ekki von á barni hefði ég beðið um hönd hennar. Hér í rút­unni brakar allt þegar menn hreyfa sig, því­lík hrein­indi eru í hverju horni. Og þessu ævin­týri var alls ekki lokið.

Eftir pöbb­aröltið héldum við á venjúið til sánd­tékks. Það gekk mjög vel, sal­ur­inn góður, fólkið með á nót­unum og allt ein­stak­lega auð­velt eftir nokkra Guinness. Klukku­tíma síðar var svo blásið til tón­leika sem gengu ljóm­andi. Sándið var frá­bært, við spil­uðum afskap­lega vel og allt eins og best verður á kosið nema hve fólks­fjöld­inn var alls ekki nægur. Við náðum þó upp ágætri stemn­ingu og komum sáttir af sviði. Við urðum svo enn sátt­ari þegar í ljós kom að hin böndin spil­uðu fyrir síst fleiri. Svona er þetta víst bara í Belfast segir Gazz. Hér búa fáir og enn færri mæta á tón­leika. Fáir segir hann. Hér búa um það bil jafn­margir og á Íslandi.

Trommari Alestorm mætti líka á tón­leika. Sá heitir Peter og er álíka meist­ara­snill­ingur og Gazz. Þvílík gleði að hitta þessa menn á ný. Eftir gigg rót­uðum við dót­inu okkar í kerruna í snatri og eftir það héldum við þrír, ég, Gareth og Flex, í þvotta­vélar­átt til að ná í það sem út af stóð af óhreinatauinu. Þar var allt meyj­ar­hreint og sam­an­brotið. Ég mis­not­aði aðstöð­una enn frekar og laum­aði mér í sturtu. Mig grunar að ég hafi tæmt alla lík­ams­hreinsi­efna­brús­ana hans Gazz. Þetta var unaður og ég sit ég tand­ur­hreinn og skrifa þessa færslu.

Klukkan er 3.36. Hinar rút­urnar eru farnar en við ætlum að hinkra þar til 10 í fyrra­málið. Á morgun spilum við í Dublin og þangað er ekki nema kannski tveggja tíma akstur. Kvöldið leyst­ist upp í fyll­erí, kannski mögu­lega fyrir okkar sakir, en það gat af sér alls­konar skemmti­legt trúnó. Þetta er skemmti­legur túr og með okkur fullt af alls­konar skemmti­legu fólki.

Það skemmti­leg­asta er þó að Gareth ætlar senni­lega að lauma sér í auka­koj­una og fylgja okkur til Dublin. Hann, Jón og Baldur eru hér fyrir utan rút­una að rök­ræða þetta allt saman, Gunni er að brasa eitt­hvað mis­gáfu­legt hér fyrir innan og er á nátt­föt­unum, hinir eru í koju. Nú hætti ég að skrifa. Ég ætla að leggja öll mögu­leg lóð á skál­arnar og lokka Gazz inn í rút­una.

Þetta var frá­bær dagur.

Meist­ara­legt dags­ins: Að hitta gamla vini.

Sköll dags­ins: Í Belfast lokar allt klukkan eitt um helgar. Ég er svangur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár