Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Glasgow

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Klukkan er 21.24 og Elu­veitie eru að klára fyrsta lagið. Ég sit í stóru bak­her­bergi og horfi á hálf­nakta Rússa pakka sér saman. Þetta var bara einn af þessum dögum. Ég hef varla farið út af tón­leika­staðnum, hér er þokka­lega rúmt um alla, inter­netið virkar, en svo sem ekk­ert meira en það, og bara ein­hvern veg­inn þannig stemn­ing. Lítið að frétta svo sem og allir frekar das­aðir.

Arkona halda áfram að taka óþarf­lega langan tíma í hlut­ina. Við vorum aftur frekar seinir fyrir vegna þess að þau voru svo lengi að sánd­tékka og koma sér fyrir. Þol­in­mæði Flexa fær­ist alltaf nær þol­mörkum og senni­lega kemur að því að hann láti í sér heyra við tækni­mann­inn þeirra. Það vill auð­vitað eng­inn illt en svona vill þetta oft verða, allir vilja hafa sitt í lagi og hugsa kannski ekki alveg um það hvort þeir séu að ganga á hluta ann­arra. Við kippum þessu í lið­inn.

[caption id="attachment_12085" align="alignleft" width="200"] Bibbi og Þrábi, eins og hann er oft kall­aður í blogg­inu.[/caption]

Sviðið hér í Glasgow er það minnsta sem við höfum spilað á til þessa. Þetta var eig­in­lega bara kjána­legt. Trommu­pall­ur­inn er meira að segja þarna, en ekki nema brot af honum, og það sem eftir var af svið­inu gerði ekk­ert meira en að rúma okkur. Við spil­uðum hér fyrir ári síðan og þá man ég að okkur þótti plássið lítið. En við þessar aðstæður var þetta hálf­fá­rán­legt og ég man varla eftir því að við höfum áður spilað í svona litlu plássi. Jú, á Paddy’s í Keflavík í árdaga Skálmaldar. Þá spil­aði ég með bassa­háls­inn undir ride-cymbalnum hans Jóns og með rass­inn utan í stoð og Böbba til skiptis. Hér voru tækni­menn þó með allt sitt á hreinu sem hjálp­aði mikið til. Á miðju gigg­inu fann ég að Þráinn Árni hall­aði sér skart upp að mér og ég lagð­ist á móti. Við tókum svaka­lega pósu á þung­arokks­vísu og fórum mik­inn. Í miðri pós­unni kall­aði hann svo inn í eyrað á mér: „Ég var næstum dott­inn!“. Hann var ekk­ert að reyna að vera kúl. Hann var bara að reyna að halda jafn­vægi. Með minni hjálp. Þetta var pínu stíft gigg framan af, kannski hálfur salur af fólki og pínu ládeyða yfir öllu. En við létum þau hreyfa sig. Smátt og smátt fjölg­aði í salnum og undir lokin var allt orðið kjaft­fullt. Fínt gigg sem ég verð búinn að gleyma eftir 3 daga.

Nú hefur fækkað um einn í Elu­veitie. Sekkja­pípu­leik­ar­inn, hinn geð­þekki Patrick, þurfti frá að hverfa vegna ein­hvers ves­ens. Hvort þetta er end­an­leg blóð­taka þori ég ekki að segja til um en eitt­hvað drama átti sér víst stað. Leið­in­legt. Okkur kom alveg ein­stak­lega vel saman við Päde. Tón­list­ar­lega leysa þau þetta með hjálp tækn­innar. Það brennur við í þessum geira tón­listar að sveitir spili með hjálp þess sem kallað er Click Track. Klikk­trakk er taln­ing í hljóð­formi sem trymb­ill­inn, og stundum fleiri, hafa í eyr­unum meðan spilað er. Þannig er tryggt að lögin séu alltaf á sama hraða. Þetta finnst sumum vera svindl. Það sem fleirum finnst svindl er þegar þessi tækni er tekin skref­inu lengra. Það er jú svo að þegar tempóið er vitað upp á sek­úndu­brot er ekk­ert mál að láta tölv­una spila með sér. Og það gera sumir óspart. Einhver bönd hafa bara eitt­hvað smott­erí til að krydda, fal­lega strengi eða stöku bak­rödd. Sumar hljóm­sveitir ganga mun lengra og hafa gríð­ar­lega mikið til upp­fyll­ingar. Þeir sem lengst ganga spila ekk­ert í alvör­unni heldur þykj­ast bara. Ég ætla ekki að fella dóm hvað er rétt og hvað er rangt, en við höfum farið þá leið að spila allt sjálfir og notum ekk­ert hel­vítis klikk­trakk. Ég held nú raunar að Elu­veitie gangi ekki mjög langt í þessum efnum. Jújú, maður heyrir ann­ars slagið hljóð sem eng­inn á svið­inu er að fram­kvæma, en það eru meira svona mini­ma­ísk áhrifs­hljóð frekar en eitt­hvað drastískt. En tölvan er þarna og hún mallar, og það var grein­lega ekki mikið mál að kveikja á sekkja­píp­unni þótt sekkja­pípu­leik­ar­inn væri far­inn. Ég veit ekki. Mér finnst þetta und­ar­legt. Fyrir mér er þetta ekki það að vera í hljóm­sveit. Gald­ur­inn er að hafa þetta í hendi sér og ef ein­hver rugl­ast, spilar illa, hraðar/hægar en venju­lega eða beygir almennt út af braut­inni þá heyr­ist það. Að sama skapi er ekk­ert meira gef­andi en að spila í vel æfðri hljóm­sveit þegar allt smellur saman. Það er kraftur sem ég full­yrði að ómögu­lega sé hægt að fram­kalla ef örygg­is­netið, tölvan, spilar með. Það er eitt­hvað und­ar­legt and­rúms­loft hjá Sviss­lend­ing­unum eftir þetta allt saman. Sjáum hvernig þetta fer.

Við borð­uðum líf­rænt í gær, hollt, bragð- og stað­gott. Ekki í dag. Við fórum á hel­vítis McDonalds. Ætli þetta sé ekki í kannski fimmta skipti sem ég fer á slíkan stað á ævinni, en þetta var svona hóp­ferð hjá okkur strák­unum. Ég lét Böbba panta. Ég át tvo ham­borg­ara sem áttu ekki að vera eins en brögð­uð­ust auð­vitað alveg eins. Franskarnar, tómats­sósan og kókið var líka allt eins. Það er bara eitt bragð á McDonalds. Og það hræði­leg­asta er að manni líður vel þegar maður er búinn að éta þennan manna­skít. Svona vellíðan í bland við eft­irsmá og skömm. Grunar að þetta sé eins og að halda fram­hjá kon­unni sinni. Pínu gott, en alger­lega ófyr­ir­gef­an­legt.

Núna eru strák­arnir að róta meðan ég skrifa þetta. Þessi tón­leika­staður er þeirri bölvun gæddur að hann er á fjórðu hæð og hér er engin lyfta. Þetta er því hel­víti mikið streð, burður á græjum fram og til baka. Mikið vona ég að Merlin þurfi sjálfur að bera trommu­pall­inn. En neinei, að er klár­lega ekki þannig.

Á morgun spilum við í Belfast á Norður-Írlandi og þangað höfum við aldrei komið. Ég veit ekk­ert hversu lengi við verðum að koma okkur þangað en mér skilst að Robert ætli að leggja í hann milli tólf og hálf­eitt. Við tökum ferj­una klukkan fjögur í nótt en meira veit ég í raun ekki. Ég er búinn að hafa sam­band við stór­vin okkar sem býr í Belfast. Sá heitir Gareth og er bassa­leik­ari í hljóm­sveit­inni Alestorm sem við túruðum með 2011. Við höfum haldið miklu sam­bandi síðan enda þótt við höfum ekki náð að hitt­ast. Hann er búinn að lofa okkur góðum degi á morgun, túr­gædun, sturtu og þvotta­vél ef við viljum svo­leiðis og svo bara almennum meist­ara­látum. Hann er stór­brot­inn maður sem ég hlakka mikið til að hitta.

Strák­arnir eru búnir að róta. Ég skulda.

Meist­ara­legt dags­ins: Pósan okkar Þrába.

Sköll dag­ins: Makk­ar­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár