Hækkun matarskatts sögð vera rugl í Reykjavíkurbréfi

Í Reykja­vík­ur­bréfi Morg­un­blaðs­ins í dag eru áætl­anir stjórn­valda um að breyta virð­is­auka­skatts­kerf­inu, með þeim hætti að skattur á mat­væli hækki, gagn­rýndar harka­lega. Gagn­rýnin vekur athygli enda áætl­unin komin frá Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Morg­un­blaðið hefur sögu­lega fylgt Sjálf­stæð­is­flokknum að málum í rit­stjórn­ar­skrifum, er rit­stýrt af fyrrum for­manni flokks­ins og er óvant að gagn­rýna harð­lega helstu stefnu­mál hans.

Rugl og dularfullar mótvægisaðgerðir


Höfundur Reykja­vík­ur­bréfs­ins er að öllum lík­indum Davíð Oddsson, fyrrum for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í bréfi dags­ins segir að rík­is­stjórnin ætli nú „að keyra í gegn á fáum vikum mat­ar­skatt á lægst laun­aða fólkið í land­inu, hvað sem tautar og raular. Eini ávinn­ing­ur­inn sem hægt er hugs­an­lega að sjá af því er að fá hrós bak við luktar dyr frá ótryggum emb­ætt­is­mönnum fyrir að hafa ein­faldað virð­is­auka­skatts­kerfið með því að fækka skatt­þrepum þess úr tveimur ofan í tvö. Í stað þess að hætta við ruglið eru boð­aðar dul­ar­fullar „mót­væg­is­að­gerðir“ sem er svo sann­ar­lega ekki upp­skrift að því að „ein­falda kerfið“.

Bjarni Bene­dikts­son sagði í sam­tali við RÚV í gær að á næstu dögum verði farið yfir og metið hvort mót­væg­is­að­gerðir með fyr­ir­hug­aðri hækkun virð­is­auka­skatts á mat­væli dugi. Hann sé til­bú­inn að ræða frek­ari aðgerðir ef þær sem kynntar hafa verið duga ekki.

Framsókn tvístígandi


Breyt­ingar á virð­is­auka­skatts­kerf­inu, lækkun efra þreps þess og hækkun þess lægra, var ein stærsta kerf­is­breyt­ingin sem kynnt var í öðru fjár­lága­frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar, sem kynnt var í sept­em­ber. Tekjur rík­is­sjóðs vegna virð­is­auka­skatts eiga að hækka um 20 millj­arða króna á milli ára í kjöl­far breyt­ing­anna og sam­hliða bættri efna­hags­legri stöðu þjóð­ar­innar.

[quote font="0" align="right"]Um ell­efu millj­arðar króna eiga að koma til vegna þess að lægra þrep skatts­ins, sem leggst meðal ann­ars á mat­væli og er því kall­aður mat­ar­skattur, verður hækk­aður úr sjö pró­sentum í tólf.[/quote]

Um ell­efu millj­arðar króna eiga að koma til vegna þess að lægra þrep skatts­ins, sem leggst meðal ann­ars á mat­væli og er því kall­aður mat­ar­skattur, verður hækk­aður úr sjö pró­sentum í tólf. Samkvæmt úttekt ASÍ eyðir tekju­lægrði hluti þjóð­ar­innar um það bil tvö­falt stærri hluta af launum sínum í mat­ar­inn­kaup en þeir sem eru tekju­hærri. Í fjár­laga­frum­varp­inu var gert ráð fyrir mót­væg­is­að­gerðum upp á einn millj­arð króna í formi barna­bóta til að milda þetta högg á þá tekju­lægri.

Þingmenn Fram­sókn­ar­flokks­ins virt­ust ekki alveg sáttir með þessar breyt­ing­ar­til­lögur og sam­þykktu fjár­lögin með fyr­ir­vara vegna breyt­ing­anna á mat­ar­skatt­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár