Íslandsbanki segir upp samningum við VISA og Valitor

Íslands­banki hefur sagt upp samn­ingum sínum við alþjóð­lega greiðslu­korta­fyr­ir­tækið VISA, og íslenska greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið Valitor. Íslands­banki hefur und­ir­ritað samn­ing við Borgun, sem mun fram­vegis sjá um allar korta­færslur við­skipta­vina bank­ans. Þá hyggst bank­inn fram­vegis ein­vörð­ungu gefa út greiðslu­kort undir merkjum Mastercard, og hefur gert við­skipta­vinum sínum við­vart um breyt­ing­una, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Bankinn hyggst með þessu ein­falda verk­lag og auka skil­virkni varð­andi greiðslu­korta­við­skipti, en fram til þessa hefur Íslands­banki átt í við­skiptum við bæði Borgun og Valitor. Valið á milli þess að beina við­skiptum sínum alfarið ýmist til VISA eða Mastercard réðst eftir útboð bank­ans, þar sem greiðslu­kort­ar­isarnir keppt­ust um hit­una. Íslands­banki á ráð­andi hlut í Borgun, en valið á milli Borgunar og Valitor réðst eftir úttekt end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins KPMG.

Mikið högg fyrir Valitor


Samkvæmt heim­ildum Kjarnans má áætla að Valitor verði af tekjum sem nema hund­ruðum millj­óna króna á ári, eftir upp­sögn Íslands­banka á samn­ingnum við greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið. Samn­ingar bank­ans við VISA og Valitor renna úr gildi á næstu mán­uðum, en þeim verður fram­lengt mánuð í senn þar til yfir­færsl­unni lýkur. Valitor vildi ekki veita neinar upp­lýs­ingar um málið þegar eftir því var leitað.

Við­skipta­vinir Íslands­banka, sem hafa not­ast við VISA greiðslu­kort fá send ný Mastercard debet- og kredit­kort í pósti, sem er nýbreytni hér á landi, sem þeir geta svo virkjað í heima­banka Íslands­banka innan tveggja mán­aða. Með nýjum Mastercard greiðslu­kortum Íslands­banka munu við­skipta­vinir bank­ans geta fram­kvæmt snerti­lausar greiðslur, með því að bera greiðslu­kort sín upp að posum. Íslands­banki áætlar að það muni taka tvö til þrjú ár að skipta út VISA greiðslu­kort­unum fyrir Mastercard, en ráð­ist verður í yfir­færsl­una í áföngum.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru frek­ari breyt­ingar á íslenska korta­mark­aðnum í far­vatn­inu, en þar eru gríð­ar­legar fjár­hæðir undir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár