Tveimur blaðamönnum sagt upp á ritstjórn DV

Tveimur blaða­mönnum á rist­jórn DV var sagt upp störfum í dag. Annar þeirra er Hjálmar Frið­riks­son, sem segir í sam­tali við Kjarnann að sér hafi verið til­kynnt við upp­sögn­ina að hans fyrri frétta­skrif sam­ræm­ist ekki nýrri rit­stjórn­ar­stefnu DV. Þetta hafi Hall­grímur Thor­steins­son rit­stjóri DV tjáð honum á fundi þeirra í dag. Sem dæmi um nýleg frétta­skrif Hjálmars fyrir DV má nefna umfjöllun hans um byssu­málið svo­kall­aða.

Hall­grímur Thor­steins­son segir DV ekki hafa tekið upp nýja frétta­stefnu, en vissu­lega komi inn nýjar áherslur með nýjum rit­stjóra. Hall­grímur segir upp­sagn­irnar í dag tengj­ast hag­ræð­ing­ar­að­gerðum DV, þar sem ákveðið hafi verið að skera niður launa­kostnað blaðs­ins um fimmtán pró­sent. Aðgerð­irnar ein­skorð­ist ekki við starfs­menn á rit­stjórn DV og engar frek­ari upp­sagnir hjá DV séu í far­vatn­inu. Launa­kostn­aður blaðs­ins hafi óum­flýj­an­lega lækkað við brott­hvarf starfs­fólks í kjöl­far yfir­töku nýrra eig­enda að blað­inu.

"Þessar upp­sagnir í dag eru liður í því að bregð­ast við tap­rekstri blaðs­ins á und­an­förnum árum, og færa rekst­ur­inn meira í átt að tekj­unum. Blaðið myndi ekki ganga mikið lengur að óbreyttu," segir Hall­grímur í sam­tali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár