Ein stærsta matvöruheildsala landsins verður til

Heild­versl­unin Innnes ehf. gekk frá kaupum á öllu hlutafé Búrs ehf þann 12. nóv­em­ber sl. eftir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið stað­festi kaupin enda var það mat eft­ir­lits­ins „að um óveru­lega sam­þjöppun sé að ræða á þeim mörk­uðum sem fyr­ir­tækin hafa starfað á“ segir í til­kynn­ingu vegna kaupanna. Kaup­verðið er ekki gefið upp, en með þess­ari sam­ein­ingu verður til stærsta mat­vöru­heild­sala lands­ins. Starfs­menn eru um 160 tals­ins og velta á ári um níu millj­arðar króna.

Búr ehf hefur sér­hæft sig á ávaxta- og græn­met­is­mark­aði, inn­lendum sem og inn­fluttum vörum og hefur boðið uppá yfir 400 vöru­liði í ferskum ávöxtum og græn­meti. Íslensk fram­leiðsla nemur um þriðj­ungi af sölu fyr­ir­tæk­is­ins.

Við sam­ein­ingu fyr­ir­tækj­anna undir nafni Innnes verður til ein stærsta mat­vöru­heild­sala lands­ins með eitt fjöl­breyttasta vöru­úr­val sem boðið er uppá á mat­vöru­mark­aði á Íslandi, segir í til­kynn­ingu vegna kaupanna. „Til­gangur Innnes með kaup­unum á Búr er að styðja við áfram­hald­andi vöxt á ferskvöru­mark­aði, stuðla að auk­inni neyslu og um leið hvetja til holl­ara matar­æðis lands­manna en með kaup­unum. Markmið Innnes er að vera ávallt í fara­broddi á sínu sviði hvað varðar vör­ur­fram­boð, þjón­ustu til við­skipta­vina sinna sinna og mark­aðs­set­ingu vöru­merkj­anna,“ segir í til­kynn­ingu vegna kaupanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár