Reynir segir Sigurð G. hafa komist í einkapósta fyrrum starfsmanna

Reynir Trausta­son, fyrrum rit­stjóri DV, segir að lög­mað­ur­inn Sigurður G. Guð­jóns­son hafi kom­ist yfir ein­tak af bók hans eftir að Sigurður og vit­orðs­menn hans hafi farið inn í tölvu­pósta fyrrum starfs­manna DV sem nú eru hættir. Slíkt sé lög­brot. Þetta kemur fram í facebook-færslu Reynis sem birt­ist fyrir skemmstu.

Í færsl­unni segir Reynir: „Sigurður G. Guð­jóns­son lög­maður er með upp­kast að bók minni Afhjúpun sem sent var í einka­pósti fyrir mis­tök á net­föng tveggja sam­starfs­manna minna á DV. Enginn vafi leikur á að hand­ritið, sem hann birtir nú á Facebook kemur þaðan. Sam­starfs­menn­irnir sem um ræðir eru hættir en greini­legt er að Sigurður og vit­orðs­menn hans eru með aðgang að tölvu­póstum þeirra. Lög­manninnum ætti að vera ful­ljóst að það er lög­brot að fara inn á net­föng starfs­manna með þeim hætti sem þarna ger­ist. Nokkur net­föng fyrr­ver­andi starfs­manna eru enn opin. Fékk um það ábend­ingu fyrir nokkrum dögum að núver­andi fram­kvæmda­stjóri DV hefði sent út gögn sem fengin voru með þessum hætti. Nú liggur fyrir að Sigurður G. hefur kom­ist í einka­póstana og birtir á Facebook-síðu sinni hug­verk sem er stolið.

Ég er með stað­fest að núver­andi stjórn­endur DV, rit­stjóri og fram­kvæmda­stjóri, hafa aðgang að umræddum póstum."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár