Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Manchester

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Klukkan er 1.10. Við Flexi erum í rútu að spjalla, Robert nývakn­aður, Böbbi og Þrábi í koju en hinir þrír eru á pöbbnum. Hér spil­uðum við fyrir rúm­lega ári síðan og hér er gott að vera.

Ég tók nótt­ina á mig. Robert var eitt­hvað örlítið afund­inn, ekki fúll svo sem, en alveg til í félags­skap við akst­ur­inn. Hers­ingin skreið í kojur en við spjöll­uðum um allt mögu­legt meðan við fikruðum okkur eftir M40-hrað­braut­inni milli London og Manchester. Þetta var ljóm­andi spjall. Robert er maður sem ég á eftir að muna í ell­inni. Við lentum snemma í morgun, gerðum til­raun til að tengja rút­una við raf­magn við tón­leika­stað­inn sem gekk ekki. Við færðum okkur um nokkrar húsa­lengjur inn á eitt­hvað skóla­svæði hvar við gátum stungið í sam­band. Svo fór ég að sofa og svaf fram­yfir hádegi.

[caption id="attachment_11992" align="alignleft" width="266"] Bibbi er hér í rækt­inni, eins og sést. Það er að segja hug­ar­rækt­inni.[/caption]

Robert lagði rút­unni eins nálægt venjúinu og hægt var. Ég ætla að giska á sirka 50 metra fjar­lægð. Það þýddi tals­verðan hljóð­færa­burð en hið óskap­lega hjálp­lega hjálp­ar­fólk stað­ar­ins gerði okkur lífið mjög ein­falt. Við fengum alla þá hjálp sem sem mögu­lega hægt var að fá sem gerði dag­inn alveg ljóm­andi bæri­legan. Ég fór yfir göt­una og keypti mér tann­bursta. Ég er búinn að týna tveimur nú þegar á ferð­inni, þeim sem ég kom með sem og þeim sem Gunni lét mig hafa þegar sá hvarf. Ég veit ekki hvar ég hef komið þeim fyrir. Þetta er hálf­und­ar­legt eig­in­lega. Svo skopp­aði ég hálf­ryðg­aður inn á tón­leika­stað­inn og skoð­aði mig um. Við fengum mat. Við fengum svo óskap­lega góðan mat. Alls­konar brauð og álegg og ávexti og græn­meti og álegg og ofaná­leggs­drullu af hip­stera­teg­undum. Glút­en­frítt og líf­rænt, góm­sætt og ljúf­fengt. Ég át mikið í dag.

Við vissum að tím­inn yrði knappur, við fengjum ekki inn­göngu á stað­inn fyrr en frekar seint, og giggið yrði fremur snemma. Anton, hljóð­maður og túrmana­ger Rússana, kom til okkar ábúð­ar­fullur og sagði að við skyldum láta hlut­ina ger­ast hratt. Allur af vilja gerður, en þó fóru hlut­irnir ekki eins og planið var. Rúss­arnir eru lengi að koma sér fyrir dag hvern. Þeir eru fastir í skorðum, ekk­ert sér­stak­lega lengi að vinna en ná samt und­an­tekn­inga­laust að láta hlut­ina ger­ast hægt. Ég er ekki búinn að pin­pointa það nákvæm­lega, en mig grunar að allar þeirra græjur og öll þeirra tæki séu ónýt. Tækja­kost­ur­inn þeirra er í skársta falli und­ar­legur, í versta falli hand­ó­nýtur, og það tefur fyrir þeim hvern ein­asta dag. Manni þykir þetta ekk­ert til­töku­mál þegar það kemur ekki inn á okkar aðgerðir, en í tíma­hraki líkt og í dag er þetta alvöru vanda­mál.

Skipu­lagið í dag var ónýtt. Eða nei, það var frá­brugðið því sem venjan er á þessum túr og ein­hver gleymdi að láta okkur vita. Tibor, túrmana­ger Elu­veitie (og mögu­lega alls túrs­ins, þótt það hafi aldrei kom­ist á hreint) tók þetta á sig á end­anum. Þegar sánd­tékki lauk voru 8 mín­útur í gigg, ekki 33 eins og við héldum. Það vann ekki með neinum, ég hljóp út í bíl og sótti sviðs­fatn­að­inn, skutl­aði bass­anum utan um mig og hitti strák­ana hlið­ar­sviðs. Þá þegar hafði Flexi kveikt á introinu og kannski mín­úta í að við myndum stíga á svið. Það var þá sem ein­hver gaukaði því að okkur að við ættum bara að spila í 35 mín­útur í kvöld, ekki 45 eins og venju­lega. Við leystum þetta þarna 5 sek­úndur í gigg, afréðum að sleppa Með fuglum, öðru nýja lag­inu á prógram­inu og keyrðum svo­lítið hart á rest­ina. Mig grunar að áhorf­endur hafi líka haldið að giggið væri aðeins seinna, við hófum leika fyrir hálf­tóman sal og þurftum að draga fólkið til okkar. Þetta end­aði reyndar ágæt­lega, en byrj­unin á þessum tón­leikum var senni­lega dýpsta lægðin sem við höfum mætt á túrnum hingað til varð­andi áhorf­endur. En eins og venju­lega leystum við þetta. Við spil­uðum af okkur rass­gatið og hrein­lega létum fólk hlusta. Vel leyst, sal­ur­inn orð­inn þétt­stað­inn í lokin og við komum hálf­brjál­aðir af sviði. Strax í kjöl­farið kom Tibor til okkar og afsak­aði sig í bak og fyrir. Það er svo­lítið ný hlið á honum því hann hefur almennt sýnt af sér frekar skít­legan karakter. Eða svona gúmmí­skít­legan í það minnsta. Hann er ljóm­andi gaur en finnst greini­lega gaman að vera með dólg. Þarna tók hann hlut­ina þó réttum tökum, ját­aði öll sín mis­tök og bug­taði sig og beygði. Hann hefði getað komið út úr þessum sam­skiptum sem minni maður en á end­anum fannst mér meira til hans koma en áður. Gott. Mjög gott.

Arkona fengu líka styttri tíma. Ég veit ekki nákvæm­lega hvað olli þessum stytt­ingum en þetta hafði eitt­hvað með opn­un­ar­tíma stað­ar­ins að gera. Þessi hlið var öll und­ar­leg í dag, við­mótið hins vegar frá­bært. Ég hlakka til að koma hingað aftur.

[caption id="attachment_11993" align="align­right" width="266"] Kasetta. Gríð­ar­lega mik­il­vægt.[/caption]

Já eða þangað. Klukkan er 1.49 og við erum lagðir af stað. Flexi er far­inn í koj­una, Jón Geir, Baldur og Gunni eru mis­fullir og flestir í góðu skapi. Robert var ekki alveg ánægður með að menn skyldu mæta seint í rútu en við höfðum eytt kvöldrest­inni með hópnum öllum. Hópurinn er heldur betur að þétt­ast og hér eru allir orðnir kunn­ugir. Hér fer skemmti­leg grúppa sem gaman er að ferð­ast með. Eins gott, við eigum rúman mánuð eftir.

Þrási var sá eini sem hreyfði almenni­lega á sér rass­gatið í dag. Hann fór á Old Trafford, heima­völl Manchester United, og skoð­aði sig um. Þar var auð­vitað ekk­ert að ger­ast. Minja­gripa­verslun, safn og tómir bún­ings­klefar. Og gras sem bannað er að snerta. Ég skil ekki nákvæm­lega hvernig þetta ætti að gleðja nokkurn. En það er svona, grasið er oft grænna hinum megin við hlaupa­braut­ina.

Í skyldum fréttum má nefna að ég reyndi að ganga til liðs við Manager-klanið. Hér í rút­unni hafa menn spilað Football Manager í gríð­ar­legum skorpum til þess að drepa tím­ann. Ég eyddi nokkrum Evrum og þónokkrum tíma í að sækja þennan leik á iPadd­inn. Ég spil­aði fjóra leiki. Ég vann meira að segja einn. En þetta er leið­in­legt. Þetta er alveg ógeðs­lega leið­in­legt. Ég hef ekki spilað leik af Manager-tagi síðan ég spil­aði slíkan á Sinclear Spectrum rétt fyrir miðjan níunda ára­tug­inn. Leik­ur­inn sá var eitt­hvað bil­aður svo ég varð alltaf að vera Liverpool. John Barnes var þriðji bestur. Hann var með 8. Ian Rush var næst­bestur með 9 og Kevin Keagan var með 10, sum sé yfir­burða­maður. Og það var ógeðs­lega gaman. Þessi nýald­ar­leikur sner­ist mest­meg­ins um að sækja um vinnu og skoða ímeilið sitt. Af hverju í and­skot­anum ætti mér ekki að vera sama um hvort ein­hver ímynd­aður vara­maður er í ást­ar­sorg eða ekki? Bestu kall­arnir eiga bara að vera með 10! Drasl. Ég finn mér eitt­hvað enn ógáfu­legra að gera til að eyða tím­anum.

Christina og Hösk­uldur komu á gigg annað kvöldið í röð og verða aftur með okkur í Glasgow á morgun. Gull­fal­legur félags­skapur og við náðum að fara með þeim út að borða eftir gigg í kvöld. Og við hittum fleiri. The Vintage Caravan eru á túr um Evrópu rétt eins og við og spil­uðu í nágrenn­inu, bara nokkrum götum frá. Þeir heilsuðu upp á okkur gömlu menn­inna en hurfu svo til baka til að gera sig klára. Þeir hófu leika aðeins seinna en við og Flexi og Þrási stukku af stað eftir giggið okkar til að sjá þá. Flexi er þeirra hljóð­maður númer eitt og lét sig ekki muna um að grípa í takk­ana. Þetta var víst þrus­ugigg enda frá­bært band þar á ferð. Og miklir meist­ara­snill­ingar.

Klukkan er 2.01. Gunni var að hella upp á alveg dýr­indis­kaffi sem ég er rétt að segja að fara að sulla svolitlu af Johnny Walker út í. Jón og Baldur voru að hnakk­ríf­ast rétt áðan en eru hættir því, sá yngri, og raunar lang­yngsti, er að tala í sím­ann en ald­urs­for­set­inn að skegg­ræða við bíl­stjór­ann. Núna erum við að reyna að kom­ast að því hvort ekki sé hægt að spila geisla­diska í bílnum. Ég keypti víst þre­faldan geisla­disk í vega­sjoppu í nótt. Hann heitir GREATEST EVER! POP PUNK. Gunni er samt senni­lega búinn að skemma geisla­spil­ar­ann. Partýið er í hættu.

Glasgow á morgun. Ætli það sé ekki svona 5 tíma keyrsla í heild­ina. Djúp­steikt Mars og eitt­hvað svo­leiðis. Eitthvað annað en allur hummus­inn í dag.

Meist­ara­legt dags­ins: Matur!

Sköll dags­ins: Tímahrak og skipu­lags­leysi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár