RÚV vill fá óskert útvarpsgjald sem standi undir rekstri félagsins

Stjórn RÚV hefur form­lega óskað eftir því að félagið fái útvarps­gjaldið svo­kall­aða óskert eins og kveðið er á um í útvarps­lögum. Þetta kemur fram í grein eftir Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóra sem birt­ist í dag. Hann kynnir fram­tíð­ar­sýn sína fyrir RÚV á fundi með starfs­mönnum í dag.

Í grein­inni segir: "Á und­an­förnum árum hefur ríkið árlega tekið til sín hluta af útvarps­gjald­inu og nýtt í óskyld verk­efni þrátt fyrir óbreyttar laga­kvaðir um víð­tæka þjón­ustu og skuld­bind­ingar RÚV. [...]Stjórn RÚV hefur óskað eftir því að félagið fái útvarps­gjaldið óskert eins og kveðið er á um í útvarps­lögum. Þannig mætti tryggja áfram­hald­andi öfl­ugt Rík­is­út­varp, með sam­bæri­legar skyldur og hlut­verk og verið hefur. Óbreytt útvarps­gjald dugir til að standa undir enn öfl­ugri dag­skrá og til að bæta dreifi­kerfið svo það nái til alls lands­ins. Ekki er þörf á að hækka útvarps­gjaldið frá því sem nú er eða veita sér­stök fjár­fram­lög til RÚV."

RÚV staðráðið í að auka innlenda dagskrárgerð


Fram­tíð­ar­sýn stjórnar og starfs­fólks RÚV er að félagið verði áfram öfl­ugur almanna­mið­ill í þjón­ustu þjóð­ar­innar allrar, með auk­inni áherslu á menn­ingar- og sam­fé­lags­hlut­verk hans, að því er fram kemur í grein útvarps­stjóra.

"Við viljum sinna menn­ingu þjóð­ar­innar enn betur en gert hefur verið, í útvarpi, sjón­varpi og á vef. Við erum stað­ráðin í að efla inn­lenda dag­skrár­gerð. Sér í lagi þarf að bæta fram­boð á íslensku leiknu efni og gæða­efni fyrir börn á íslensku enda verður á næstu árum gerð enn rík­ari krafa um að Rík­is­út­varpið bjóði nýjum kyn­slóðum Íslend­inga upp á vandað íslenskt efni þegar erlent afþrey­ing­ar­efni á erlendum tungu­málum er á hverju strái."

Þá hyggst RÚV ráð­ast í úrbætur á dreifi­kerfi félags­ins, sem hafi verið mik­il­vægur hlekkur í almanna­vörnum þjóð­ar­innar.

"For­sjálir hug­sjóna­menn stóðu að stofnun Rík­is­út­varps­ins fyrir meira en átta­tíu árum. Þá var byggt upp viða­mikið dreifi­kerfi sem síðan hefur gegnt lyk­il­hlut­verki í miðlun dag­skrár­efnis auk þess sem það hefur verið mik­il­vægur hlekkur í almanna­vörnum þjóð­ar­innar. Á næstu árum þarf að gera úrbætur á dreifi­kerf­inu til að það geti þjónað nýjum kyn­slóðum. Jafn­hliða tækni­legri upp­bygg­ingu þarf að huga að fag­legum vinnu­brögðum og starfs­háttum RÚV og opna sam­talið við þjóð­ina um Rík­is­út­varp okkar allra," skrifar útvarps­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár