Straumur, Sigla ehf. og Ark ehf. metin hæf af FME

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Straumur fjár­fest­inga­banki hf., Sigla ehf. og Arkur ehf., séu hæf til að fara með virkan eign­ar­hlut í MP banka hf., sem nemur 25%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002. Fjár­mála­eft­ir­litið hefur metið að sam­starf sé um hinn virka eign­ar­hlut, sam­kvæmt til­kynn­ingu sem birt­ist á vef FME í gær, á milli Straums fjár­fest­inga­banka hf., sem eign­ast hefur 19,54% í MP banka hf., Siglu ehf., sem átti fyrir 0,94% og Arks ehf., sem átti fyrir 2,56% hlut í MP banka. „Sam­starfið telst vera til staðar vegna eigna- og stjórn­un­ar­tengsla sem eru með aðil­unum,“ segir í til­kynn­ingu frá FME.

Eins og Kjarninn greindi frá 6. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn þá hafa verið þreif­ingar í gangi meðal stjórn­enda og hlut­hafa Straums, MP banka og Íslenskra verð­bréfa um að sam­eina fyr­ir­tækin þrjú í eitt. Ekkert liggur þó fyrir um það ennþá.

Straumur keypti 64,3 pró­sent hlut Sævars Helga­sonar og Ásgeirs Ásgeirs­sonar, í gegnum félagið Gunner ehf., í Íslenskri eigna­stýr­ingu ehf., sem á 21,83 pró­sent hlut í Íslenskum verð­bréfum.

MP banki,Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna (LIVE) og félag í eigu Garðars K. Vil­hjálms­sonar keyptu 27,5 pró­sent hlut Íslands­banka í Íslenskum Verð­bréfum í októ­ber. Straumi býðst síðan að ganga inn í til­boð í aðra hluti í ÍV á grund­velli for­kaups­rétt­ar­á­kvæðis, en mál eru þó ekki komin svo langt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár