Alls ekki einhugur hjá þjóðinni um skuldaniðurfellingar

Fjórir af hverjum tíu lands­mönnum eru sáttir við skulda­leið­rétt­ing­una, mun fleiri í ald­urs­flokknum 50 ára og eldri eru ánægðir en þeir sem yngri eru og Reyk­vík­ingar eru ósátt­astir allra lands­manna. Þetta kemur fram í skoð­anna­könnun Frétta­blaðs­ins um málið sem birt var í dag.

Nið­ur­stöður hennar sýna að 41 pró­sent svar­enda voru sáttir við aðgerð­ina, 32 pró­sent ósáttir, 22 pró­sent voru óákveðnir í afstöðu sinni og fimm pró­sent aðspurðra kusu að svara ekki. Þegar ein­ungis var horft til þeirra sem tóku afstöðu voru 56 pró­sent sátt við skulda­nið­ur­fell­ing­arnar en 44 pró­sent á móti.

Um 95 pró­sent þeirra sem kusu Fram­sókn­ar­flokk­inn eru sáttir með aðgerð­irnar og 84 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Óánægjan er því að lang­mestu leyti hjá öðrum kjós­endum en þeirra.

Hjá þeim sem tóku afstöðu í ald­urs­hópnum 18 til 49 ára var afstaðan til aðgerð­anna algör­lega klofin. Helm­ingur var sáttur en helm­ingur ósáttur. Í ald­urs­flokknum 50 ára og eldri sagð­ist hins vegar 63 pró­sent vera sátt með nið­ur­stöð­una en 37 pró­sent ósátt.

Skoð­anna­könnun Frétta­blaðs­ins var gerð 12. og 13. nóv­em­ber. Við gerð hennar var hringt í 1.244 manns eða þar til náðst hafði í 800 manns. Svar­hlut­fall var því 64,3 pró­sent. Úrtakið er lag­skipt slembi­úr­tak.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár