Vísindamenn forviða á söng halastjörnu

Geim­vís­inda­menn evr­ópsku geim­ferða­stofn­un­ar­innar (ESA) hafa gefið út hljóð­brot sem Rósetta, gervi­tunglið sem nú hring­sólar um hala­stjörn­una 67P/Churyumov-Ger­asi­menko, hefur numið með fjöl­breyttum mæli­tækjum sínum. Hala­stjarnan virð­ist, af upp­tök­unni að dæma, gefa frá sér furðu­leg hljóð sem við hér á Jörðu gætum kallað söng.

Frá þessu er greint á blogg­síðu rann­sókn­ar­mann­ana hjá ESA. Rósetta er búin fimm mæli­tækjum sem eiga að mæla raf­gasið umhverfis hala­stjörn­unnar. Mæli­tækin eiga að rann­saka ýmsa þætti sem hugs­an­lega hafa áhrif á hala­stjörn­una, til dæmis sól­gos, enda­laust streymi raf­gass frá sól­inni, breyt­ingar á hegðun hala­stjörn­unnar með tíð og tíma og fleira.

Þegar vís­inda­menn­irnir fóru yfir gögnin sem Rósetta hefur þegar sent til Jarðar urðu þeir hissa því svo virð­ist sem að Churyumov-Ger­asi­menko „syngi“. Raf­seg­uls­bylgj­urnar umhverfis hala­stjörn­una mynda þennan sér­staka söng. Á hljóð­brot­inu hér að ofan má hlusta á söng hala­stjörnu, en hljóð­styrk­ur­inn hefur verið tíu­þús­und­fald­aður úr 40-50 millihertzum svo manns­eyrað geti numið hljóðið.

Söng­ur­inn greind­ist fyrst í ágúst þegar Rósetta var komin inn fyrir 100 kíló­metra rad­íus frá Churyumov-Ger­asi­menko. Vís­inda­menn telja söng­inn stafa af hátta­lagi hala­stjörn­unnar og því að hún virð­ist losa hlut­lausar öreindir út í geim­inn þar sem þær jón­ast. Enn er þó á huldu hvað veldur bylgj­unum.

Fjallað var ítar­lega um Rósettu og hala­stjörnu­kannan Philae í Þætti um kúl hluti á þriðju­dag. Hægt er að hlusta á þátt­inn í Hlað­varpi Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár