365 innheimtir ekki virðisaukaskatt vegna fjarskiptaþjónustu

Á greiðslu­seðlum 365 vegna sér­stakra áskrift­ar­pakka, er ekki gert ráð fyrir virð­is­auka­skatti vegna fjar­skipta­þjón­ustu, sem inni­falin er "end­ur­gjalds­laus" í til­boð­unum. Samkvæmt lögum um virð­is­auka­skatt er það óheim­ilt, og gildir þá einu þó skatt­skyld þjón­usta sé veitt án end­ur­gjalds.

Ljóshraðanet og heimasími fylgir á 0 kr.


Fjöl­miðla­sam­steypan 365 aug­lýsir fimm áskrift­ar­til­boð, svo­kall­aða til­boð­s­pakka, á heima­síðu sinni þar sem full­yrt er að ljós­hraða­net og heima­sími fylgi með í til­boð­inu á núll krónur. Pakk­arnir sem um ræðir eru Skemmti­pakk­inn, Sport­pakk­inn, Stóri pakk­inn, Risa pakk­inn og Enski pakk­inn. Skemmti­pakk­inn er ódýrastur, kostar 8.490 krónur á mán­uði, en Risa pakk­inn kostar mest, eða 23.990 krónur á mán­uði.

Kjarninn hefur undir höndum greiðslu­seðil vegna áskriftar að Skemmti­pakka 365. Þar ber upp­hæðin sem er til inn­heimtu 8.490 sjö pró­senta virð­is­auka­skatt, sem útleggst á rúmar 555 krónur. Það er að hluta til í sam­ræmi við skatta­lög, enda bera afnota­gjöld hljóð­varps- og sjón­varps­stöðva sjö pró­senta virð­is­auka­skatt. Fjar­skipta­þjón­usta ber hins vegar 25,5 pró­senta virð­is­auka­skatt, en hvergi er minnst á fjar­skipta­þjón­ust­una sem inni­fal­inn er í pakka­til­boð­inu, enda þjón­ustan "ókeypis" sam­kvæmt til­boð­inu.

[caption id="attachment_11466" align="alignnone" width="679"] Hér má sjá hvar 365 inn­heimtir sjö pró­senta virð­is­auka­skatt í sam­ræmi við skatt­pró­sentu vegna sjón­varps­á­skriftar. Fjar­skipta­þjón­ustan er hins vegar hvergi sjá­an­leg á greiðslu­seðl­inum.[/caption]

Þegar gef­inn er út reikn­ingur vegna sölu­vöru sem ber að hluta 25,5 pró­senta virð­is­auka­skatt en að hluta sjö pró­senta virð­is­auka­skatt á að aðgreina söl­una eftir skatt­hlut­föllum þannig að heilda­ver­verð vöru og þjón­ustu, ásamt virð­is­auka­skatti, komi sér­stak­lega fram vegna hvors skatt­hlut­falls. Er kveðið á um þetta í lögum um virð­is­auka­skatt.

Skiptir engu þó skattskyld þjónusta sé afhent án endurgjalds


Selji þjón­ustu­að­ili, án sér­stakrar sund­ur­lið­unar á sölu­reikn­ingi, skatt­skyldar vörur eða þjón­ustu sem bera ýmist 25,5 eða sjö pró­senta virð­is­auka­skatt inn í órjúf­an­legri heild, til dæmis til­boð­s­pakka, og kaup­andi hefur ekki val um að kaupa vör­urnar í sitt hvoru lagi, ber að leggja virð­is­auka­skatt á heild­ina í sam­ræmi við þá vöru eða þjón­ustu innan til­boð­s­pakk­ans sem ber hæsta virð­is­auka­skatt­inn. Ekki er skýrt kveðið á um þetta í skatta­lög­gjöf­inni, heldur er þetta túlkun sem leidd er af meg­in­regl­unni að skatt­skyldar vörur og þjón­usta beri almennt 25,5 pró­senta virð­is­auka­skatt.

Samkvæmt lögum um virð­is­auka­skatt skiptir engu þó 365 sé bein­línis að afhenda fjar­skipta­þjón­ustu end­ur­gjalds­laust. Ef skatt­skyldur aðili, sem 365 vissu­lega er, afhendir án end­ur­gjalds skatt­skyldar vörur eða þjón­ustu, eins og fjar­skipta­þjón­ustu, ber engu að síður að reikna virð­is­auka­skatt vegna slíkrar afhend­ingar og skila í rík­is­sjóð, og skal þá miða við almennt gang­verð til grund­vallar skatt­verð­inu.

365 sendir að jafn­aði út tvo greiðslu­seðla á mán­uði, ann­ars vegar vegna áður­nefndra áskrifta­til­boða og hins vegar meðal ann­ars vegna umfram gagna­magns, leigu á beini og vegna ljós­leið­ara­gjalds sem rennur til Mílu. Á þeim greiðslu­seðlum er ekki heldur gert ráð fyrir 25,5 pró­senta virð­is­auka­skatts vegna fjar­skipta­þjón­ustu, það er ljós­hraða­nets og heima­síma.

Í svari Rík­is­skatt­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans vildi emb­ættið ekki svara því hvort málið sé til skoð­unar þar. Þá kveðst rík­is­skatt­stjóri ekki geta tjáð sig um skatt­skil eða önnur mál­efni ein­stakra aðila.

365 vinnur að breytingum á framsetningu greiðsluseðla


Í svari Sigrúnar L. Sig­ur­jóns­dóttur, fram­kvæmda­stjóra fjár­mála­sviðs 365, við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að fyr­ir­tækið reikni og skili tví­skiptum virð­is­auka af sjón­varps­þjón­ustu og fjar­skipta­þjón­ustu. "Það er hins­vegar rétt ábend­ing að þessi útreikn­ingur kemur ekki fram með sýni­legum hætti á reikn­ingnum fyrir sjón­varps­þjón­ust­una en verið er að vinna að því að breyta fram­setn­ingu þannig að þessi útreikn­ingur sé sýni­legur."

Þá sé sömu­leiðis unnið að því að tryggja að við­skipta­vinir fái einn sam­eig­in­legan greiðslu­seðil þegar þeir kaupa fjar­skipta- og sjón­varps­þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár