Stofnaður verði sjóður fyrir þá sem vilja gefa frá sér leiðréttinguna

Marínó G. Njálsson, fyrr­ver­andi stjórn­ar­maður hjá Hags­muna­sam­tökum heim­il­anna, skorar á rík­is­stjórn­ina að koma á fót sér­stökum sjóði, þar sem lagt verður inn fé úr leið­rétt­ing­unni frá fólki sem ekki vill þiggja pen­inga­gjöf­ina úr rík­is­sjóði, og sjóðnum verði svo varið í önnur þjóð­þrifa­mál á Íslandi. Þetta er inn­tak pistils sem birt­ist á heima­síðu Marínós í gær, en hann og eig­in­kona hans, Harpa Karls­dóttir eru bæði skrifuð fyrir áskor­un­inni.

Sóttu um leiðréttinguna en vilja hana ekki núna


"Við hjónin fengum, eins og margir aðrir lands­menn, til­kynn­ingu í vik­unni að við ættum rétt á leið­rétt­ingu vegna þeirra verð­tryggðu fast­eigna­lána sem við vorum með á árunum 2008 og 2009. Við reikn­uðum aldrei með að upp­hæðin yrði há, en sóttum samt um. Vegna breyttra aðstæðan, þá teljum við hins vegar heið­ar­leg­ast af okkur að nýta okkur ekki leið­rétt­ing­una," segir í áskor­un­inni.

"Það er svo sem úr okkar höndum hvernig þessum pen­ingum verður ráð­stafað, fyrst við munum ekki þiggja þá. Okkur langar þó að skjóta þeirri hug­mynd að rík­is­stjórn­inni, að þeir pen­ingar sem svona falla til, lágar upp­hæðir eða háar, fari í sjóð sem hafi það þjóð­þrifa­verk­efni að byggja upp heil­brigð­is­kerfið í land­inu og bæta stöðu öryrkja og aldr­aðra. Þannig að, Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, við biðjum ykkar að leggja við hlustir og sjá til þess að þetta verði gert mögu­legt."

Þó nokkur hópur fólks hefur lýst því yfir, til að mynda á Facebook, að hann muni ekki þiggja "leið­rétt­ing­una," af ýmsum ástæðum. Lífleg og, oft og tíðum, heiftug umræða hefur fylgt í kjöl­farið þar sem hóp­ur­inn hefur meðal ann­ars verið gagn­rýndur fyrir að hafa sótt um leið­rétt­ingu sem hann svo ekki vildi.

Skora sérstaklega á stjórnmálaleiðtoga að hafna leiðréttingunni


Hjónin skora jafn­framt á fyr­ir­tæki lands­ins að greiða litlar eða stjórar fjár­hæðir í sjóð­inn.

"Þessu til við­bótar viljum við hjónin skora á alla sem sóttu um og geta fengið leið­rétt­ingu, en telja sig ekki þurfa á henni að halda, telja upp­hæð­ina svo litla að hún skipti ekki máli, telja sig fá óbragð í munn­inn við að þiggja hana, telja leið­rétt­ing­una vera illa með­ferð á almannafé eða hafa talað gegn leið­rétt­ing­unni af hvaða ástæðu sem er, að þiggja ekki leið­rétt­ing­una með ósk um að sú upp­hæð, sem þeim var úthlutað, fari í sjóð til upp­bygg­ingar á heil­brigð­is­kerf­inu og til mál­efna öryrkja og aldr­aðra. Sér­stak­lega skorum við á for­menn stjórn­mála­flokka á þingi, sem sóttu um og geta fengið leið­rétt­ingu sinna lána, að gera slíkt hið sama."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár