Pæling dagsins: Hanna Birna áttar sig ekki á alvarleika málsins

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu varð fyrir því ótrú­lega upp­á­tæki inn­an­rík­is­ráð­herra lands­ins, Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, að hún hafði bein afskipti af rann­sókn saka­máls þar sem ráðu­neyti hennar og póli­tískir aðstoð­ar­menn voru til rann­sóknar. Þetta hefur verið marg­stað­fest, meðal ann­ars af Stefáni Eirík­is­syni, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra, sem var and­lag afskipt­anna, og raunar líka Hönnu Birnu sjálfri. Stefán hætti sem lög­reglu­stjóri í kjöl­farið á þessum atburðum og tók við öðru starfi. Afskiptin voru alveg skýr, og fólust meðal ann­ars í því að hún sagði að fullt til­efni væri til þess að rann­saka rann­sókn lög­reglu og Rík­is­sak­sókn­ara, og hvers vegna væri verið að gera hitt og þetta. Kom þessu til skila á fundum með Stefáni. Auk þess gagn­rýndi hún málið allt marg­sinnis í ræðum og riti og sagði það ljótan póli­tískan leik, sem hefði reynt mikið á hana, og gaf í skyn að fjöl­miðlar hefðu verið vondir við hana. Nú hefur komið í ljós að lög­reglan og Rík­is­sak­sókn­ari voru að gera allt rétt, rann­sóknin átti fullan rétt á sér og aðstoð­ar­maður ráð­herra, Gísli Freyr Val­dórs­son, gerð­ist sann­ar­lega sekur um lög­brot með því að leka gögnum. Hann ját­aði glæp­inn að lokum, eftir að hafa verið ákærður, og fékk dóm, 8 mán­aða fang­elsi skil­orðs­bundið til tveggja ára. Það er eðli­legt að pæla í því, hvernig í ósköp­unum á því stendur að Hanna Birna hefur ekki sagt af sér sem inn­an­rík­is­ráð­herra, beðist afsök­unar á lög­brot­inu í ráðu­neyti hennar, aug­ljósum óeðli­legum afskiptum hennar af rann­sókn máls­ins, og sagt af sér þing­mennsku sömu­leiðis. Trún­að­ar­brest­ur­inn gagn­vart almenn­ingi og kjós­endum verður ekki mikið aug­ljós­ari. Svo virð­ist sem hún ein­fald­lega neiti að horfast í augu við alvar­leika máls­ins, sem er for­dæma­laust með öllu.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár