Þingflokkurinn lýsir yfir breiðum stuðningi við Hönnu Birnu

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra nýtur breiðs stuðn­ings innan þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins til að starfa áfram í rík­is­stjórn. Þetta er nið­ur­staða þing­flokks­fundar Sjálf­stæð­is­manna í dag að sögn Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í sam­tali við mbl.is.

Eins og fram hefur komið var Gísli Freyr Val­dórs­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra, dæmdur í átta mán­aða fang­elsi í Hér­aðs­dómi í dag fyrir að leka trún­að­ar­upp­lýs­ingum um hæl­is­leit­anda úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu til fjöl­miðla í nóv­em­ber. Fulln­usta dóms­ins kemur ekki til haldi Gísli Freyr skil­orð í tvö ár.

"Nýtur óskoraðs trausts frá mér"


Í frétt mbl.is um málið er haft eftir Bjarna: "Hún nýt­ur trausts til að halda áfram. Hún nýt­ur óskor­aðs trausts frá mér og það kom fram breiður stuðn­ing­ur við ráð­herr­ann á þing­flokks­fund­in­um. Það er eðli­legt að menn spyrji sig þegar aðstoð­ar­maður ráð­herra fær dóm á sig í refsi­máli hvernig eigi að bregð­ast við. Í mín­um huga hef­ur ráð­herr­ann gert það sem í henn­ar valdi stend­ur til þess að bregð­ast við."

Þá segir Bjarni að Hanna birna hafi reynt að aðstoða við að upp­lýsa um málið þó ein­hver mis­tök hafi verið gerð undir rann­sókn þess. Ekkert bendi til þess að Hanna Birna hafi haft aðkomu að mál­inu. Þá hafi hún axlað ákveðna póli­tíska ábyrgð á sínum tíma þegar hún sagði sig frá dóms­mál­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár