Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Antwerpen

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Klukkan er 22.55 og ég er bak­sviðs. Ætli Elu­veitie séu ekki sirka hálfnuð.

[caption id="attachment_11870" align="alignleft" width="162"] Flexi.[/caption]

Ég lifði lengst í nótt og við Robert spjöll­uðum um allt milli him­ins og jarðar. Við þekkj­umst orðið ansi vel og eigum gott skap saman. Við þok­uðum okkur rólega inn í Belgíu og lentum fyrir utan tón­leika­stað­inn Trix kannski um klukkan sex. Þá var vel farið úr viskíflösk­unni hans Baldurs. Flexi hélt okkur reyndar sel­skap síð­ustu kíló­metrana en þegar við komum á leið­ar­enda fórum við að sofa. Ég svaf svo eitt­hvað fram­yfir hádegi og valt síð­astur á lappir. Ég komst ekki að því fyrr en ég steig inn­fyrir að við höfum spilað hér áður, senni­lega var það 2011. Og hér er gott að vera. Öll aðstaða til fyr­ir­myndar, sturtur og alls­konar her­bergi og fín­erí, sviðið stórt og mat­ur­inn alger­lega stór­brot­inn. Þetta var kær­komið eftir mis­jafnan kost síð­ustu daga. Ég heyrði stutt­lega í vini mínum Aðal­birni Tryggva­syni en hann er á svip­uðum túr og við með sveit sinni Sól­stöfum. Þeir spil­uðu víst í Köln í gær en verða svo nákvæm­lega hér á þessum stað á morgun. Skemmti­leg til­viljun.

Ég tók það rólega fram­eftir degi, sýsl­aði á ágætis inter­neti og svar­aði eins og einu blaða­við­tali. Sándtékk dróst á lang­inn. Bæði byrj­uðum við seint vegna þess að Rúss­arnir, sem tékka á undan okkur, voru ekki alveg á tánum. Þannig var trommar­inn þeirra, Andre, týndur þegar að þeim var komið. Tíminn var svo sem nægur og við hinkruðum bara. Tékkið okkar var svo ekki alveg áfalla­laust heldur því hljóð­kerfið var í ein­hverju lama­sessi. Það tafði fyrir pirruðum Flexanum og raunar komst þetta ekki lag á þetta fyrr en eftir að tón­leik­arnir okkar voru byrj­aðir. Þá loks­ins hafði ein­hver lókall­úð­inn fyrir því að ýta á ein­hvern takka sem þurfti að vörka. Eða eitt­hvað svo­leiðs. Eitthvað fasa­mál. Eitthvað tækn.

Við fengum svo liðs­auka í dag. Chrigel, söngv­ari Elu­veitie spilar líka á alls­konar, þar á meðal flautur. Hann og Nicole , sem spilar á fiðlu í bandin ...

(Klukkan er 00.29. Ég var rif­inn frá blogg­inu til að mingla við pöp­ul­inn. Við reynum að gera það á hverju kvöldi, bæði vegna þess að það er alls ekki leið­in­legt, en kannski líka vegna þess að það selur varn­ing. Mynda­tökur, árit­anir og svo­leiðis nokkuð. Gaman, en líka þreyt­andi. En hey, við seldum vel í dag.)

... u, stigu með okkur á svið og spil­uðu aðal­stefið í Kvaðn­ingu. Það var gaman. Það var mjög gaman og þau bros­andi allan hring­inn. Ég er alveg til í að gera þetta oftar á túrnum. Elu­veitie. Þetta er fal­legt fólk.

Ruslan, bassa­leik­ari Arkona er 42 ára í dag. Við sungum reyndar bara fyrir hann þegar bíla­lestin stopp­aði á bens­ín­stöð í nótt. Við sungum á íslensku með rómi sem hvaða íslenski sauð­fjár­bóndi hefði verið stoltur af. Ruslan fór að gráta. Það var fal­legt.

Stijn er Belgi og hann er líka umboðs­mað­ur­inn okkar. Hann kom á tón­leik­ana í kvöld og var svona óskap­lega kátur. Hann dílar líka með Hot Sauce og gaf okkur líters­gímald af svo­leiðis. Hann var ánægður með allt saman, tón­leik­arnir voru góðir og hann finnur jákvæðan víbring kringum allt sem Skálmöld gerir þessa dag­ana. Og við auð­vitað líka, nýja platan er að fá frá­bæra dóma og hjólin snú­ast á fullu. Gott að hitta Stijn, hann er vinur okkar og meist­ara­snill­ingur.

[caption id="attachment_11871" align="align­right" width="300"] Þráinn Árni Bald­vins­son úr Torfu­nesi í Kinn (var það komið fram?) sést hér með skæri. Líklega mana­ger að pirra.[/caption]

Giggið gekk ljóm­andi, en svo sem ekk­ert meira en það. Hljóðið var ekki alveg með okkur í liði og Belgarnir ekki svona óskap­lega til í stuðið eins og Frakk­arnir síð­ustu daga. Við þurftum að hafa meira fyrir hlut­unum og ég kom alveg dauð­upp­gef­inn af sviði. Um leið og giggi lauk fór ég í sturtu og var þar lengi. Svo skipti ég um föt, brók og bol og sokka og alls­konar. Æi, þetta er svo mikil snilld. Litlu hlut­irnir, þeir eru alltaf bestir.

Núna sitjum við í rútu og bíðum eftir því að leggja í hann. Á morgun er frí­dagur en eftir það spilum við í London. Þangað ætlum við núna og ætlum að taka ferj­una til Dover klukkan hálf5. Planið er að lenda í Lund­úna­borg sirka um miðjan dag á morgun og eyða því sem eftir lifir við partý­höld. Gunnar Ben á nefni­lega afmæli á morgun, eða strangt til tekið í dag. Hann ætlar að leiða sam­kom­una og sjá til þess að okkur leið­ist ekki. Hann bjó um tíma í London og þetta á að verða eitt­hvað svona nostal­g­í­urunk held ég. Það verður örugg­lega osom. Nú fjölgar í rút­unni um einn því Cat, varn­ings­sölu­stelpan okkar og Arkona, ætlar að fljóta með. Rúss­arnir ætla ekki strax til London en hún ferð­ast venju­lega með þeim. Cat er vina­leg og þetta verður örugg­lega alveg ljóm­andi.

Ásgeir heitir maður og er búsettur hér í borg. Hann kom á tón­leik­ana með félaga sínum og skemmti sér vel. Við áttum við hann ágætis spjall um heima og geima og hann tal­aði mikið. Skemmti­legur gaur og vinnur á bar hér í borg sem svo aftur hefur snerti­flöt við áhuga hans á bjór. Og hann kom með svo­leiðis. Eftir tón­leik­ana vatt hann sér út í bíl­inn sinn og kom til baka með nokkrar flöskur af belgískum eðal­bjór handa okkur. Falleg gjöf frá fal­legum manni.

Klukkan er 00.49 og við erum ekki enn farnir af stað enda þótt planið hafi verið að fara klukkan hálf. Baldur er senni­lega úti að leita að Cat. Hálf5 já, þá fer ferjan. Nú er spurn­ingin hvort maður leggur sig fyrir ferju eða ekki. Í það minnsta sagði Þrábi hér stund­ar­hátt að hann hlakki óskap­lega til að kaupa sér enskan morg­un­verð í ferj­unni, bara til þess að leifa rúm­lega helm­ingnum. Morg­un­mat­ur­inn í ferj­unni er hrein­asta ógeð, en það er alltaf eitt­hvað við hann. Cat var að hlamma sér inn með far­ang­ur­inn sinn. Klukkan er 00.55 og við erum lögð af stað.

Það eru áður óþekkt hvolpa­læti í rút­unni. Sætt.

Meist­ara­legt dags­ins: Skálmöld ft. Elu­veitie.

Sköll dags­ins: Lókall­úð­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár