Sérstakur saksóknari fær aukafjárveitingu

Gert er ráð fyr­ir um 215 millj­óna króna auka­fjár­veit­ingu til emb­ætt­is sér­staks sak­sókn­ara í fjár­auka­lög­um sem tek­in voru til 1. umræðu á Alþingi í gær. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Að auki er gert ráð fyr­ir 150 millj­óna króna tíma­bundnu fram­lagi til eins árs sem nýta á í að ljúka eldri mál­um emb­ætt­is­ins, að því er segir í grein Morg­un­blaðs­ins. Alls 365 millj­ón­um króna meira en gert hafði verið ráð fyr­ir í fyrri áætl­un­um í fjár­lög­um.

Í gild­andi fjár­lög­um var fram­lag til emb­ætt­is­ins lækkað um 300 millj­ónir króna í takt við áætl­un þess um fram­gang mála, og sagði Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari, meðal ann­ars að þetta myndi þýða að hætta þyrfti rann­sókn mála og segja upp starfs­fólki. „Sam­kvæmt nýj­um upp­lýs­ing­um frá emb­ætt­inu mun sú áætl­un ekki stand­ast,“ seg­ir í fjár­auka­lög­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár