Gögn sem talin eru sanna leka Gísla Freys voru kynnt í fyrradag

Sak­sókn­ari kynnti ný gögn fyrir verj­anda Gísla Freys Val­dórs­sonar í fyrra­dag sem hann telur að sanni að Gísli Freyr hafi átt við minn­is­blað um hæl­is­leit­endur sem lak til Frétta­blaðs­ins og mbl.is í nóv­em­ber 2013. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag og er stað­fest af Helga Magnúsi Gunn­ars­syni, sak­sókn­ara.

Gísli Freyr Val­dórs­son ját­aði í gær að hafa lekið skjali úr ráðu­neyt­inu varð­andi hæl­is­leitandur, meðal ann­ars Tony Omos, til Frétta­blaðs­ins og mbl.is í nóv­em­ber 2013. Gísli Freyr var þá aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu Krist­jáns­dótt­ur inn­an­rík­is­ráð­herra, Hann hefur verið ákærður fyrir lek­ann og aðal­með­ferð í mál­inu fer fram í dag. Vegna játn­ingar Gísla Freys munu vitni ekki verða kölluð fyrir, en meðal þeirra sem áttu að bera vitni er Hanna Birna Krist­jáns­dóttir.

Gísli Freyr og Hanna Birna sendu bæði frá sér yfir­lýs­ingar vegna máls­ins í gær. Gísli Freyr var auk þess gestur Kast­ljóss á RÚV þar sem hann fór yfir játn­ingu sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár