Tilkynning Gísla Freys Valdórssonar: Horfist í augu við mistök sín

Gísli Freyr Val­dórs­son, fyrrum aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra, seg­ist ekki lengur hafa getað lifað í lyga­vef og þess vegna hafi hann ákveðið að við­ur­kenna að hafa afhent Frétta­blað­inu og mbl.is upp­lýs­ingar um mál­efni hæl­is­leit­and­ans Tony Omos í nóv­em­ber í fyrra. Hann segir ljóst að hann hafi brugð­ist trún­aði þeirra ein­stak­linga sem fjallað var um í minn­is­blað­inu sem hann breytti og lak síðan til fjöl­miðl­anna tveggja. Gísli Freyr seg­ist einnig hafa brugð­ist trausti Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra og sam­starfs­fólks í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Nú vilji hann horfast í augu við mis­tök sín. Þetta er meðal þess sem kemur fram í til­kynn­ingu sem Gísli Freyr sendi á fjöl­miðla í kvöld.

Tilkynning frá Gísla Frey Valdórssyni


„Ég kýs að stíga fram og við­ur­kenna að hafa afhent fjöl­miðlum upp­lýs­ingar um mál­efni hæl­is­leit­enda sem höfðu verið í opin­berri umræðu í nóv­em­ber 2013. Ég get ekki lengur lifað í lyga­vef sem ég sjálfur ber ábyrgð á að hafa spunnið í kringum mig. Það er ljóst að ég hef brugð­ist trún­aði þeirra ein­stak­linga sem um var fjallað og trausti Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur og sam­starfs­fólks í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Nú er mál að linni og ég verð að horfast í augu við gjörðir mínar. Mér hefur verið vikið úr starfi og nú bíð ég dóms í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Þegar ég afhenti fjöl­miðlum upp­lýs­ing­arnar var það gert í góðri trú. Þá gerði ég mér ekki grein fyrir alvar­leika máls­ins, hvað þá að um lög­brot var að ræða. Það var dóm­greind­ar­brestur af minni hálfu. Fjöl­miðlar höfðu þá spurst fyrir um málið sem máls­að­ilar höfðu sjálfir haft frum­kvæði að fjalla um opin­ber­lega. En eðli þess­ara mála er við­kvæmt og stjórn­sýslan getur ekki upp­lýst um alla anga þeirra. Mistök mín fólust í því að telja eðli­legt að upp­lýsa almenn­ing á Íslandi betur um efni máls­ins frá fleiri hliðum en komið höfðu fram.

Daginn eftir gerði ég mér grein fyrir að ég hafði tekið ranga ákvörðun. Í stað þess að vera maður til að við­ur­kenna mis­tök mín strax sagði ég ráð­herra ósatt þegar hún spurði mig hvort ég hefði sent fjöl­miðlum upp­lýs­ing­arnar. Þar sem ég naut þá og síðar óskor­aðs trausts ráð­herra hafði hún enga ástæðu til að draga orð mín í efa.

Það má vera að reynslu­leysi mitt í stjórn­sýslu hafi gert það að verkum að ég gerði mér ekki grein fyrir alvar­leika máls­ins. En tím­inn leið og málið vatt uppá sig með afleið­ingum sem ég sá ekki fyrir. Það varð því alltaf erf­ið­ara fyrir mig að stíga til baka og við­ur­kenna að ég hafði ekki sagt satt frá í upp­hafi.

Það er erfitt að útskýra af hverju ég tók ekki af skarið fyrr og við­ur­kenndi brot mitt. Mig tekur það mjög sárt gagn­vart öllum þeim sem ég hef starfað með og hafa mátt sæta ásök­unum í kjöl­far þeirrar atburð­ar­rásar sem ég ber ábyrgð á. Mig tekur það sárt gagn­vart fólki sem tekur þátt í stjórn­málum með það að leið­ar­ljósi að berj­ast fyrir hug­sjónum sínum af heið­ar­leika og mig tekur það sárt gagn­vart almenn­ingi sem á að geta treyst á fag­mennsku í íslenskri stjórn­sýslu. Ég brást þessu fólki en vil horfast í augu við mis­tök mín og biðja það fyr­ir­gefn­ingar."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár