Gísli Freyr játar að hafa lekið skjali úr innanríkisráðuneytinu

Gísli Freyr Val­dórs­son hef­ur játað að hafa lekið skjali úr ráðu­neyt­inu varð­andi hæl­is­leit­anda til Frétta­blaðs­ins og mbl.is í nóv­em­ber 2013. Gísli Freyr var þá aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu Krist­jáns­dótt­ur inn­an­rík­is­ráð­herra, Hann hefur verið ákærður fyrir lek­ann og máls­með­ferð stendur yfir. Þetta kem­ur fram í yf­ir­lýs­ingu frá inn­an­rík­is­ráð­herra sem birt­ist á mbl.is

Yf­ir­lýs­ing inn­an­rík­is­ráðherra:


„Fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður minn, Gísli Freyr Val­dórs­son, óskaði síð­deg­is í dag eft­ir fundi með mér í fram­haldi af til­kynn­ingu frá Hér­aðs­dómi Reykja­vík­ur um að rétt­ar­höld­um í máli rík­is­sak­sókn­ara gegn Gísla Frey hefði verið frestað.

Gísli Freyr ját­aði svo á fund­in­um mér að hann hefði af­hent skjal úr ráðu­neyt­inu varð­andi hæl­is­leit­anda til fjöl­miðla í nóv­em­ber 2013.

Trúnaðar­brot Gísla Freys gagn­vart mér, ráðu­neyt­inu og al­menn­ingi öll­um er al­gjört og al­var­legt. Gísli Freyr hef­ur ít­rekað haldið fram sak­leysi sínu, ekki aðeins gagn­vart yf­ir­völd­um og fjöl­miðlum, held­ur einnig gagn­vart sam­starfs­fólki sínu og yf­ir­mönn­um í ráðu­neyt­inu.

Í fram­haldi af játn­ingu Gísla Freys var hon­um fyr­ir­vara­laust vikið úr störf­um í ráðu­neyt­inu.

Ég harma brot Gísla Freys, ekki aðeins gagn­vart þeim sem brotið var gegn með lek­an­um sjálf­um, held­ur einnig gagn­vart því sam­starfs­fólki sem trúað hef­ur yf­ir­lýs­ing­um hans um sak­leysi og því hvernig at­hæfi hans hef­ur varpað skugga á störf ráðu­neyt­is­ins um margra mán­aða skeið.

Sú stað­reynd að fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður minn hafi brotið svo al­var­lega á trún­aði gagn­vart mér sem ráð­herra, sem ít­rekað hef haldið uppi vörn­um fyr­ir hann í því trausti að hann hefði skýrt mér og öðrum satt og rétt frá, kem­ur mér al­gjör­lega í opna skjöldu og er þyngri byrði fyr­ir mig en ég get lýst í fáum orðum."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár