Þessir einstaklingar eiga mest af skráðum hlutabréfum á Íslandi

Hersir Sig­ur­geirs­son, dós­ent við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, og Frímann Snær Guð­munds­son, við­skipta­fræð­ingur, hafa tekið saman lista yfir þá tutt­ugu ein­stak­linga sem eiga mest af hluta­bréfum í skráðum félögum á Íslandi.

Listann er að finna í rann­sókn þeirra, sem kynnt var á hádeg­is­verð­ar­fundi Félags við­skipta­fræð­inga og hag­fræð­inga í dag, undir yfir­skrift­inni; Eign­ar­hald á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði í lok árs 2013.

[caption id="attachment_11770" align="aligncenter" width="367"] Listi yfir þá tutt­ugu ein­stak­linga sem mest eiga af skráðum hluta­bréfum á Íslandi.[/caption]

Þórður Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður Eyrir Invest, trónir á toppi list­ans með 1,16 pró­sent skráðra hluta­bréfa í sinni eigu, en mark­aðsvirði bréf­anna nam rúmum 5,7 millj­örðum króna í lok árs 2013.

Árni Oddur Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Eyrir Invest og núver­andi for­stjóri Marel, átti í lok árs 2013 rétt rúm­lega eitt pró­sent allra skráðra hluta­bréfa á mark­aði, að and­virði tæp­lega fimm millj­arða króna. Ljóst má vera að stærsta eign feðganna Þórðar og Árna séu hluta­bréf í Marel, en stærsta eign Eyrir Invest er sömu­leiðis í Marel.

Fjár­festir­inn Sigurjón Jónsson situr í þriðja sæti list­ans, með 0,46 pró­sent skráðra hluta­bréfa á Íslandi í sinni eigu, en mark­aðsvirði bréf­anna nam tæpum 2,3 millj­örðum króna í lok árs 2013.

Þá eru mörg önnur kunn­ug­leg nöfn úr við­skipta­líf­inu á list­anum. Má þar helst nefna fjár­fest­anna Friðrik Hall­björn Karlsson og Árna Hauksson, Kjartan Gunn­ars­son, Helga Magn­ús­son stjórn­ar­maður hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna, fjár­fest­inn Heiðar Má Guð­jóns­son, Skúla Mogensen og Bjarna Ármanns­son. Athygli vekur að aðeins þrjár konur kom­ast á list­ann, eða þær Steinunn Jóns­dóttir, Helga Sig­urð­ar­dóttir og Súsanna Sig­urð­ar­dóttir.

Mark­aðsvirði hluta­bréf­anna sem tutt­ugu manna hóp­ur­inn átti í lok árs 2013, nam röskum 26,2 millj­örðum króna. Þá átti hóp­ur­inn sam­an­lagt 5,32 pró­sent allra hluta­bréfa í skráðum félögum á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár