Viðskiptaráð Íslands styður frjálsa smásölu áfengis

Við­skipta­ráð styður frum­varp þar sem lagt er til að lögum um verslun með áfengi og tóbak verði breytt þannig að einka­leyfi Áfengis- og tóbaks­versl­unar rík­is­ins (ÁTVR) á smá­sölu áfengis verði aflagt og smá­sala áfengis verði heim­iluð í mat­vöru­versl­unum.

Þetta kemur fram í umsögn Við­skipta­ráðs sem það hefur sent Alls­herjar- og mennta­mála­nefnd Alþingis.

Við­skipta­ráð tekur undir það sjón­ar­mið að ríkið eigi ekki að standa í versl­un­ar­rekstri enda hafi ráðið ávallt talað fyrir því að hið opin­bera láti af rekstri sem einka­að­ilar geti sinnt með hag­kvæm­ari hætti. Þá telur ráðið að hægt sé að ná mark­miðum um lág­mörkun á skað­legum áhrifum áfeng­is­neyslu með öðrum leiðum en rík­is­ein­okun á smá­sölu áfengra drykkja, meðal ann­ars í gegnum for­varn­ar­starf. Loks telur Við­skipta­ráð að þær breyt­ingar sem frum­varpið felur í sér komi til með að auka hag­kvæmni í smá­sölu áfengis án þess að skerða tekjur rík­is­sjóðs.

Þá segir Við­skipta­ráð í umsögn sinni að reynslan af íslenskum smá­sölu­mark­aði sýni svart á hvítu að aukið frelsi í versl­un­ar­rekstri hafi stuðlað að veru­legum kjara­bótum fyrir neyt­endur hér­lendis á und­an­förnum ára­tugum.

Að end­ingu leggur Við­skipta­ráð til að frum­varpið nái fram að ganga.

Í umsögn Félags Atvinnu­rek­enda, sem skil­aði sinni umsögn til Alls­herjar- og mennta­mála­nefndar þann 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, kemur fram að félagið telji nálgun frum­varps­ins of þrönga. Á því séu alvar­legir ann­markar sem hafi í för með sér að verði það sam­þykkt óbreytt muni það á sumum sviðum þýða aft­ur­för hvað varði aðgengi neyt­enda að áfengi. Telur félagið jafn­framt að frum­varpið myndi hafa í för með sér afar íþyngj­andi breyt­ingar fyrir bæði fram­leið­endur og inn­flytj­endur áfengis, sem á end­anum myndu koma niður á sam­keppni, fjöl­breytni, vöru­fram­boði og verði á áfeng­is­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár