Lífeyrissjóður eiga tæpan helming skráðra eigna

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga, beint eða óbeint, um 43 pró­sent af skráðum félögum hér­lendis. Ef horft er ein­vörð­ungu á beint eign­ar­hald eiga sjóð­irnir 36 pró­sent allra skráðra eigna. Afgang­inn eiga þeir í gegnum hlut­deild sína í verð­bréfa­sjóðum í stýr­ingu sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækja. Þetta kemur fram í rann­sókn Hersis Sig­ur­geirs­sonar, dós­ents við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, sem Morg­un­blaðið greinir frá.

Hersir mun kynna nið­ur­stöður sínar um eign­ar­hald á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði á fundi Félags við­skipta­fræð­inga og hag­fræð­inga í hádeg­inu í dag.Hersir skoð­aði beint og óbeint eign­ar­hald í þeim ell­efu fyr­ir­tækjum sem skráð voru á íslenskan hluta­bréfa­markað í lok árs 2013. Alls tókst honum að skýra frá beinum eig­endum 97,5 pró­sent af mark­aðnum. Þegar óbeinar eignir voru teknar með í reikn­ing­inn var ekki hægt að finna upp­lýs­ingar um eign­ar­hald þrettán pró­sents mark­að­ar­ins.

Næst stærsti hóp­ur­inn á eftir líf­eyr­is­sjóð­unum eru erlendir aðilar. Þeir eiga á bil­inu 20-24 pró­sent skráðra bréfa, annað hvort beint eða óbeint. Hlutur almenn­ings, í beinni eigu, er ein­ungis sjö pró­sent og ríkið á 3,2 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár