Uppgjör á Airwaves 2014: Langar raðir, mikið stuð og frábær tónlist

Þá er enn ein Airwaveshátíðin liðin undir lok og mið­bær Reykja­víkur tæm­ist hægt og rólega af erlendum lista­mönnum og tón­list­ar­að­dá­endum.

Hátíðin í ár ein­kennd­ist af því sem virt­ist nær enda­lausum tón­list­ar­at­riðum (“off-venue” dag­skrá hátíð­ar­innar var sú stærsta hingað til), ágætis veðri, löngum röðum og almennt góðri stemnn­ingu.

Kjarninn lét sig ekki vanta og sá fjöl­margar sveitir, en hér er það sem upp úr stóð hjá blaða­manni.

Börn, frændur og önnur snilld


Ein þeirra íslensku sveita sem hefur getið sér gott orð að und­an­förnu er nýleg rokk­sveit að nafni Börn. Hljóm­sveitin átti góða tón­leika á Gauknum með ferskum tónum, flottri sviðs­fram­komu og beittum textum á hinu ást­kæra ylhýra, sem er kær­komin til­breyt­ing þegar meira en helm­ingur íslenskra sveita syngur á ensku.

Frændur okkar frá Noregi, Tremolo Tar­antura, spila ein­hverja sam­suðu rokks og metals og komu skemmti­lega á óvart á Gauknum. Tón­listin er nýstár­leg og ekki oft sem maður heyrir skemmti­lega blöndu ‘powermetal’ gítar-riffa og dauðarokks.

Samaris stóðu sig feiki­vel í Lista­safni Reykja­víkur/Hafn­ar­hús­inu þar sem þau spil­uðu fyrir liggur við hús­fylli sem hlýtur að telj­ast vel af sér vikið fyrir svo unga sveit. Ljóst er að mik­ill fókus er á þau sem næstu snilld sem Ísland sendir frá sér og var mikið af blaða­mönnum og bransa­fólki á staðnum.

Í Gamla bíó/Íslensku óper­unni (sem sumir hafa tekið upp á því að kalla “hið nýja Nasa” eftir Airwaves) mátti sjá Ástr­a­l­ana í King Gizzard & The Lizard Wizard í miklu stuði með hressandi progg-bræð­ing sem virt­ist fara vel í við­stadda.

Finni á troðfullum Kaffibar og umdeildir tónleikar


Ibibio Soundsystem hristu heldur betur upp í Hafn­ar­hús­inu og fengu áhorf­endur með sér í dans­brjál­æði með hressandi heims­tón­list sinni.
Stuð­sveitin Boogie Trouble lék á alls oddi í Iðnó fyrir pökk­uðum sal og upp­skar sjald­gæft Airwaves-upp­klapp fyrir.

Hinn finnski Jaakko Eino Kalevi spil­aði heil­lengi á troð­fullum Kaffibar að degi til og náði röðin langt upp á Laugaveg. Hann var frá­bær, virt­ist vera í góðu stuði og með fínu hljóði og skemmti­legri tón­list sinni smit­aði hann áhorf­endur í rokna­stuð.

[quote font="0" align="right"]þó á und­ir­rituð erfitt með að halda því fram að um tón­leika hafi verið að ræða og mætti þá frekar lýsa því sem fram fór í Silf­ur­bergi sem ein­hvers­konar dans-rútínu með fyr­ir­fram upp­teknum und­ir­leik.[/quote]

Lokatón­leikar The Knife á laug­ar­dags­kvöld­inu voru afar umdeildir. Vissu­lega var gaman að sjá síð­ustu tón­leika þess­arar fram­sæknu og merki­legu sveitar, en þó á und­ir­rituð erfitt með að halda því fram að um tón­leika hafi verið að ræða og mætti þá frekar lýsa því sem fram fór í Silf­ur­bergi sem ein­hvers­konar dans-rútínu með fyr­ir­fram upp­teknum und­ir­leik.

[caption id="attachment_11701" align="alignnone" width="640"] Við­burður The Knife var meira í ætt við dans­rútínu með fyr­irt­fram upp­teknum und­ir­leik en tón­leika.[/caption]

Á sama tíma og lengsta röð sem und­ir­rituð hefur á ævinni séð mynd­að­ist í Hörpu vegna tón­leika The Knife tróð hin banda­ríska Kelela upp á Húrra þar sem fleiri hefðu kom­ist að en voru inni og er það miður. Hún var flott, helst til í lág­stemmd­ari kant­inum þó og hefði verið gaman að sjá hana með fullri hljóm­sveit.

Caribou sigurvegarar laugardagskvöldsins


Caribou voru ótví­ræðir sig­ur­veg­arar laug­ar­dags­kvölds­ins. Sveitin er frá­bær á sviði og platan „Our Love” sem kom út í októ­ber er virki­lega flott verk – því var ekki slæmur kok­teill að sjá hljóm­sveit­ina spila lög af henni fyrir fullu Hafn­ar­húsi. Stemn­ingin var heit og sveitt og ást, gleði og dans ein­kenndi tón­leik­ana.

[caption id="attachment_11702" align="alignnone" width="640"] Caribou voru ótví­ræðir sig­ur­veg­arar laug­ar­dags­kvölds­ins að mati blaða­manns Kjarnans.[/caption]

Sann­kölluð sunnu­dags­stemn­ing var í vel sóttri Voda­fo­nehöll­inni á tón­leikum The War On Drugs og sást það meðal ann­ars með arfa­slöku lófataki bug­aðra hátíða­gesta í lok tón­leika þeirra. Sveitin skil­aði þó sínu vel, liðs­menn hennar voru afar þéttir og létu minni­háttar hljóð­trufl­anir lítið á sig fá.

[quote font="0" align="right"]Wayne Coyne, söngv­ari sveit­ar­innar er frá­bær front­maður og mik­ill sjar­mör sem náði að rífa upp syfj­aða stemn­ingu Voda­fo­nehall­ar­innar svo um mun­aði.[/quote]

Lokatón­leikar hátíð­ar­innar voru jafn­framt hápunktur hennar og þarf það ekki að koma þeim á óvart sem hafa séð Flaming Lips á sviði áður. Tón­leikar sveit­ar­innar eru iðu­lega meira en bara tón­leikar, þeir eru upp­lifun. Wayne Coyne, söngv­ari sveit­ar­innar er frá­bær front­maður og mik­ill sjar­mör sem náði að rífa upp syfj­aða stemn­ingu Voda­fo­nehall­ar­innar svo um mun­aði. Eins og heyrir til tón­leika Flaming Lips fyllt­ist svæðið af grímu­klæddum dönsurum, upp­blásnum blöðrum og bún­ingum – og öllu heims­ins kon­fet­tíi. Áhorf­endur hrifust með og brostu sínu breið­asta og virt­ist litlu skipta að sveitin hefur spilað á Airwaves áður (enda fimmtán ár síðan). Full­kom­inn endir á hátíð­inni og er ekki annað að sjá en að virki vel að enda Airwaves á stór­tón­leikum á sunnu­degi eins og hefur verið gert und­an­farin ár.

[caption id="attachment_11703" align="alignnone" width="640"] Langar raðir settu svip sinn á hátíð­ina í ár.[/caption]

Allt í allt var hátíðin í ár afar vel heppnuð og eiga aðstand­endur hrós skilið. Þrátt fyrir að hljóm­sveitir hafi hætt við fram­komu á síð­ustu stundu og langar raðir (vanda­mál sem virð­ist vera von­laust að leysa þrátt fyrir ýmiss konar skipu­lag) voru gestir í miklu stuði og gleði við völd.

Takk fyrir tón­list­ina – áfram Airwaves!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár