Meðalfjárhæð leiðréttingarinnar er 1.350 þúsund krónur

Nú er nýlokið blaða­manna­fundi stjórn­valda í Hörpu þar sem nið­ur­staða leið­rétt­ing­ar­innar svoköll­uðu var kynnt blaða­mönnum og almenn­ingi. Þar kom fram að 91.000 ein­stak­lingar fái skulda­leið­rétt­ingu, og meðal fjár­hæð leið­rétt­ing­ar­innar verði 1.350.000 krónur. Meðaltal hjóna er 1.510.000 krónur og hver ein­stak­lingur fær 1.100.000 krónur að jafn­aði. Nið­ur­staða um 90% um­sókna verður birt á morg­un en ekki er unnt að birta um 10% vegna ým­issa ástæðna er snúa að hög­um um­sækj­enda. Til stendur að birta þær nið­ur­stöður innan skamms.

Aðgerðunum flýtt um eitt ár


Þá kom fram á fund­inum að fjár­mögnun á heild­ar­að­gerð­unum, það er bein nið­ur­færsla á höf­uð­stóli verð­tryggðra lána og skatt­leysi við inn­borgun sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparn­aðar inn á fast­eigna­lán, hafi verið flýtt um eitt ár og henni verði að fullu lokið árið 2016. Það tryggir betri nýt­ingu fjár­muna sem ella hefðu farið í vaxta­greiðslur til fjár­mála­stofn­ana og gerir stjórn­völdum kleift að greiða hærri fjár­hæðir inn á höf­uð­stól lána. Verða 40 millj­arðar greiddir inn á leið­rétt­ing­ar­lánin á þessu ári, 20 millj­arðar í upp­hafi næsta árs og 20 millj­arðar í byrjun árs 2016.

Verðbólga umfram 4 prósent á árunum 2008 og 2009 leiðrétt


Beinar höf­uð­stólslækk­anir munu þannig kosta rík­is­sjóð um 80 millj­arða króna, en við upp­hæð­ina bæt­ast 20 millj­arðar sem rík­is­sjóður verður af í formi skatt­greiðslna vegna útgreiðslu sér­eigna­líf­eyr­is­sparn­aðar. Þá er gert ráð fyrir sjö­tíu millj­örðum króna í skatt­leysi við inn­borgun sér­eigna­líf­eyr­is­sparn­aðar, en um 30.000 ein­stak­lingar hafa sótt um það úrræði í dag.

Á blaða­manna­fund­inum kom jafn­framt fram að öll verð­bólga umfram fjögur pró­sent, á árunum 2008 til 2009, verði leið­rétt við full­nýt­ingu leið­rétt­ing­ar­innar, það er nið­ur­færsla höf­uð­stóls.

Viðtökur framar væntingum stjórnvalda


Þá verða leið­rétt­ing­ar­lán, það er höf­uð­stólsleið­rétt­ingin sjálf, afskrifuð að fullu á rúmu ári en ekki fjórum árum eins og upp­haf­lega var kynnt.

Í máli Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á blaða­manna­fund­inum í dag kom fram að hlut­fall umsókna frá þeim sem eigi rétt á leið­rétt­ingu væri að nálg­ast 100 pró­sent. Við­tök­urnar væru framar vænt­ingum stjórn­valda.

Hægt er að horfa á mynd­band stjórn­valda um útreikn­ing og sam­þykkt leið­rétt­ingar hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár