Er hægt að sjá inn til þín? Öryggismyndavélar opnar á netinu

Danski frétta­mið­ill­inn Berl­ingske Tidende greinir frá því að óprút­tnir aðilar hafi hakkað sig inn á 73.000 örygg­is­mynda­vélar á heims­vísu, og nú sé hægt að horfa meðal ann­ars inn á heim­ili fólks í gegnum mynda­vél­arnar í beinni útsend­ingu á net­inu í gegnum síð­una insecam.com. Flestar hökk­uðu örygg­is­mynda­vél­anna er að finna í Banda­ríkj­unum, sam­kvæmt vef­síð­unni, eða rúm­lega ell­efu þús­und tals­ins.

Um er að ræða svo­kall­aðar net­ör­ygg­is­mynda­vélar, sem eig­endur þeirra geta skoðað myndir úr í gegnum inter­netið. Í umfjöllun danska frétta­mið­ils­ins er fólk hvatt til þess að breyta um leyni­orð til að varna því að ókunn­ugir geti gægst í leyf­is­leysi inn á heim­ili fólks, sum­ar­bú­staði eða vinnu­staði í gegnum netið.

Berl­ingske Tidende greinir frá því að óprút­tnir aðilar hafi hakkað sig inn á 599 örygg­is­mynda­vélar í Danmörku, en inn á áður­nefndri heima­síðu, má sjá glugga inn á fjórtán net­ör­ygg­is­mynda­vélar á Íslandi. Fæstar þeirra virka reyndar, og því má vera að eig­endur þeirra hafi nú þegar brugð­ist við.

[caption id="attachment_11680" align="alignnone" width="659"] Þekkir þú þetta útsýni? Á heima­síð­unni insecam.com er full­yrt að þessi mynd komi úr net­ör­ygg­is­mynda­vél á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.[/caption]

Samkvæmt áður­nefndri umfjöllun Berl­ingske Tidende segj­ast for­svars­menn insecam.com vilja sýna fram á örygg­is­galla net­ör­ygg­is­mynda­véla með upp­á­tæki sínu. Fólk þurfi bara að breyta um lyk­il­orð að mynda­vélum sínum til að detta út af síð­unni. Þá ein­skorð­ist örygg­is­gall­arnir ekki við eina teg­und örygg­is­mynda­véla.

"Margir vita ekki af þessum örygg­is­bresti, en þetta vanda­mál hefur farið hljótt und­an­farin ár," skrifar ónafn­greindur tals­maður insecam.com í tölvu­pósti til tækni­síð­unnar Mother­bo­ard, sem heyrir undir frétta­síð­una Vice, sem fyrst greindi frá mál­inu. "Fram til þessa hafa fyr­ir­tæki brugð­ist við þegar hakk­arar hafa sýnt fram á örygg­is­galla í tækni­bún­aði, það hefur hins vegar ekki enn gerst varð­andi net­ör­ygg­is­mynda­vél­arnar."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár