Ívar Ingimarsson: Framsókn nærist á því að búa til óvini og æsing

Stöð­firð­ing­ur­inn og fyrr­ver­andi lands­liðs­maður Íslands í knatt­spyrnu, Ívar Ingi­mars­son, gagn­rýnir Fram­sókn­ar­flokk­inn harð­lega fyrir nýjasta útspil flokks­ins í flug­vall­ar­mál­inu svo­kall­aða, á Facebook síðu sinni í dag. "Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, eins og hann er nú, nær­ist á því að búa til óvini og æsing í sam­fé­lag­inu. Flokkur í frjálsu falli sér hag í því að etja saman höf­uð­borg og lands­byggð og mér sýn­ist að það sé að takast," skrifar Ívar.

"Mjög uppbyggjandi og fín umræða"


Ívar gefur lítið fyrir taktík Fram­sókn­ar­flokks­ins í flug­vall­ar­mál­inu. "Flokk­ur­inn er hvort eð er með lít­inn stuðn­ing í RVK (Reykja­vík) en getur sótt ein­hvern styrk út á land með svona tali og umræð­unni sem fylgir á eftir. Tvær fylk­ingar, sem nú tala niður til hvorar ann­arar vegna þessa mals, fá byr undir báða vængi, önnur talar um vit­laust sveita­hyski og hin um 101 lattel­epjandi Reyk­vík­inga sem engu skili til sam­fé­lags­ins. Mjög upp­byggj­andi og fín umræða sem án efa mun skila góðri nið­ur­stöðu."

Fram­komið þing­manna­frum­varp Fram­sókn­ar­flokks­ins um að færa skipu­lags­vald yfir flug­vell­inum frá Reykja­vík­ur­borg til Alþingis er Ívari ekki að skapi. "Ég vil að flug­völl­ur­inn verði í Reykja­vík, en að leggja til að taka skipu­lags­vald af Reykja­vík vegna þessa máls finnst mér döpur vin­sæld­ar­til­laga."

[caption id="attachment_11658" align="alignnone" width="484"] Stöðu­upp­færsla Ívars Ingi­mars­sonar á Facebook.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár