Um 15 þúsund manns synjað um skuldaniðurfellingu

Um 15 þús­und ein­stak­lingum verður synjað um skulda­leið­rétt­ingu. Þetta er full­yrt í Frétta­blað­inu í dag. Þegar umsókn­ar­frestur vegna skulda­leið­rétt­ingu rann út 1. sept­em­ber síð­ast­lið­inn var upp­lýst opin­ber­lega að um 69 þús­und umsóknir hefðu borist, og að baki þeim stærðu um 105 þús­und ein­stak­lingar.

Skulda­leið­rétt­ingin verður kynnt í Hörpu í dag klukkan 13:30. Samkvæmt frétt Frétta­blaðs­ins í morgun munu þeir sem fá eitt­hvað í sinn hlut vera um 90 þús­und ein­stak­lingar.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra skrifar grein í Morg­un­blaðið í dag þar sem hann fer yfir skulda­leið­rétt­ing­una. Þar kemur meðal ann­ars fram að bein lækkun höf­uð­stóls verði að með­al­tali um 1,3 millj­ónir króna.

Á morg­un verða niður­stöð­urn­ar birtar á heima­síðu verk­efn­is­ins, leið­rétt­ing.is. Þá geta þeir sem sóttu um séð hvað þeir fá í sinn hlut.

Bilið brúað með aðkomu ríkissjóðs


Í grein Sig­mundar Davíðs í Morg­un­blað­inu segir enn­fremur: „Leiðrétt­ing­in teng­ist upp­gjöri slita­búa fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja. Verja skal hluta af fyr­ir­sjá­an­legu svig­rúmi sem mynd­ast við upp­gjörið til að koma til móts við heim­il­in. Þar sem meira ligg­ur á leið­rétt­ing­unni en upp­gjöri slita­búa er bilið brúað með aðkomu rík­is­sjóðs. Svig­rúmið er hins veg­ar þegar byrjað að mynd­ast fyr­ir milli­göngu rík­is­ins en slita­bú­in greiða nú tugi millj­arða í skatta ár­lega.

Leiðrétt­ing­in er ein­ung­is fyrsta aðgerð af mörg­um sem rík­is­stjórn­in hyggst inn­leiða á kjör­tíma­bil­inu í því skyni að skapa heil­brigð­ara um­hverfi bæði heim­ila og fjár­mála­mark­aðar. Los­un fjár­magns­hafta, af­nám verð­trygg­ing­ar af nýj­um neyt­enda­lán­um, upp­bygg­ing hús­næðis­kerf­is­ins og end­ur­skipu­lagn­ing Íbúða­lána­sjóðs eru mik­il­væg­ar vörður á þeirri leið. Þannig munu öll heim­ili, óháð fjöl­skyldu­gerð og láns- eða leigu­formi, njóta góðs af breyt­ing­un­um.

Öll þessi verk­efni taka tíma og geta kraf­ist þol­in­mæði, enda verða aðstæður að vera hag­felld­ar svo að ekki verði lögð veru­leg fjár­hags­leg áhætta á heim­il­in. Flest bend­ir til að hag­stæðar aðstæður séu að skap­ast til þess­ara verka þó vissu­lega séu blik­ur á lofti, t.d. vegna óvissu um kjara­samn­inga."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár