Pæling dagsins: Gefið úr ríkissjóði á meðan hinir veiku bíða

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Í vik­unni mun skýr­ast hvernig skulda­nið­ur­fell­ing­ar­að­gerð stjórn­valda, leið­rétt­ingin, mun koma út fyrir fólk og hversu mikið hver og einn mun fá úr rík­is­sjóði til lækk­unar á verð­tryggðum hús­næð­is­skuldum. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra seg­ist ánægður með gang mála og staðið verði við allt sem sagt hefur verið um aðgerð­irnar. Eins og oft hefur komið fram, meðal ann­ars á þessum vett­vangi, þá eru þessar aðgerðir væg­ast sagt umdeildar. Það mun koma í ljós hvernig sagan mun dæma þessa for­gangs­röðun í eyðslu fjár úr sam­eig­in­legum sjóði lands­manna. En það verður að telj­ast með ólík­indum, að hægt sé að ná í 80 millj­arða í skuldum vaf­inn rík­is­sjóð, til að greiða lítið eitt inn á verð­tryggð­ar­skuldir fólks - óháð því hvort fólk þarf yfir höfuð að fá pen­ing­ana eða ekki - á meðan skurð­að­gerðum er frestað vegna verk­falls­s­að­gerða lækna. Hinir veiku þjást á meðan, og vandi heil­brigð­is­kerf­is­ins, þó í grunn­inn sé sterkt, vex einnig. Það sem hefur komið á óvart við þessar aðgerðir stjórn­valda er að þrátt fyrir að þau hafi sýnt stað­festu, með því að hrinda lof­orði Fram­sókn­ar­flokks­ins (í það minnsta að hluta) í fram­kvæmd, þá hefur fylgið ekk­ert auk­ist heldur þvert á móti minnkað. Þetta sýnir kannski hvað stjórn­málin geta verið óút­reikn­an­leg og almenn­ings­á­litið sömu­leiðis.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár