"Fokkjú lattelepjandi miðbæjarrottan þín"

Í færslu sinni á Facebook í gær, gagn­rýndi rit­höf­und­ur­inn Einar Kárason fram komið þing­manna­frum­varp sem kveður á um að skipu­lags­vald yfir Reykja­vík­ur­flug­velli fær­ist frá borg­inni yfir til Alþingis.

Færsla Einars vakti upp hörð við­brögð á Facebook, en margir virð­ast hafa túlkað orð hans sem svo að hann væri að kalla alla íbúa lands­byggð­ar­innar hyski. Aðspurður um ummæli sín svar­aði Einar á Facebook: "Það er "hyski af lands­byggð­inni" sem heimtar að fá að stjórna skipu­lags­málum í Reykja­vík. Annað fólk á lands­byggð­inni er síður en svo hyski, nema í jákvæðri merk­ingu."

Á meðal þeirra sem hafa komið Einari til varnar er Stefán Jón Hafstein, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi. "Einar Kárason er stór­vinur minn og best að taka það fram strax því nú fara heimsk­ingjar að honum með vopnum (já ég sagði heimsk­ingjar). Arfa­vit­laus til­laga er komin fram á Alþingi um að svipta Reyk­vík­inga for­ræði í skipu­lags­málum um Vatns­mýr­ina, rétt eins og ein­verjum dytti í hug að leyfa mér að segja til um hafn­ar­vit­ann á Horna­firði eða Drottn­ing­ar­braut­ina (!) á Akureyri. [...] Hér er nátt­úru­lega ekk­ert full­yrt um það að á lands­byggð­inn búi ekk­ert nema ,,hyski”. En sterk­lega gefið í skyn, sem dæmi sanna, að þar megi finna miður óráð­vanda menn og konur."

Til marks um bálið sem Einar kveikti með ummælum sínum, birtir hann skila­boð frá Krist­jáni Jónssyni Krist­jáns­syni Sjón­ar­hóli á Facebook síð­unni sinni: "Svona skrifa og hugsa Reykja­vík­ur­komma­titt­irnir sem kenna sig við listir og þríf­ast á spena skatt­greið­anda; að stórum hluta af lands­byggð­inni. Ég á allar hans bækur og þær fyrstu eru fyritaks einnota afþrey­ing en stað­reyndin er að í rúman ára­tug hefur ekk­ert mark­vert komið frá honum. Hættu þessu mið­borg­ar­kaffi­hús­arápi Einar Kárason - fáðu þér vinnu, helst á Langa­nesi,og rífðu svo kjaft!"

Blótsyrði og bókabrennur


"Nú er ég búinn að fá rúm­lega fimm­hund­ruð hat­urskomment í dag. Sem var auð­vitað mark­miðið. En tveir-þriðju af þeim ræflum sem þau skrif­uðu voru ekki menn til að skrifa undir nafni. Sem er aum­ingja­legt. En takk fyrir mig, ég elska hvern lófa­stóran blett á Íslandi, og allt fólkið sem þar býr," skrif­aði Einar á Facebook síðu sína í gær­kvöldi. Skömmu áður hafði hann birt neð­an­greind skila­boð frá ónafn­greindum ein­stak­lingi.

Í nýj­ustu færslu sinni á Facebook deilir Einar færslu frá Ásthildi Sturlu­dóttur, bæj­ar­stjóra Vest­ur­byggðar, þar sem hún skrifar "Óvinafagn­aður Lands­byggð­ar­innar!!!!" En eins og kunn­ugt er skrif­aði Einar bók­ina Óvinafagn­aður sem kom út árið 2001.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár