Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Toulouse

Svona á þetta að vera. Alltaf! Þessi dagur var full­kom­lega frá­bær. Frakkar eru alger­lega með­ð­etta, það er bara þannig. Við spil­uðum í Toulouse í fyrra, þá var það síð­asta giggið á túrnum. Það venjú var óraun­veru­legt sökum þess hversu glæsi­legt allt var. Við spil­uðum ekki á sama stað í þetta skiptið en hann var litlu síðri en sá í fyrra. Risa­stórt svið, starfs­fólk sem vinnur vinn­una sína af ástríðu, frá­bær tækja­kostur, gott bún­ings­her­bergi, almenni­leg sturta og allt bara frá­bært. Nema reyndar mat­ur­inn. Hann var drasl. Það kom á óvart bara miðað við hversu allt annað var frá­bært. Við spil­uðum fyrir kjaft­fullan sal og fólk var klár­lega komið til að skemmta sér. Og við spil­uðum svaka­lega! Þetta voru svona tón­leikar þar sem manni líður eins og Skálmöld hafi aldrei spilað betur. Þetta er besta víma í heimi. Tónlist. Þvílíkur meist­ara­snill­ingur.

[caption id="attachment_11571" align="alignleft" width="168"] Þetta eru þung­arokk­araskokk­arar.[/caption]

Ég fór klár­lega ekki síð­astur að sofa í nótt. Ég veit ekki alveg hvernig þetta end­aði en Baldur og Gunni stóðu vakt­ina lengst held ég. Og það af tölu­verðri festu. Ferðin var löng og Robert stopp­aði víst og svaf örlítið. Ég varð ekki einu sinni var við það. Mér lætur ein­stak­lega vel að sofa í svona koju og ég hrein­lega hlakka til að leggj­ast fyrir í hvert skipti. Hún er pínu­lítil, dýnan óþægi­leg, sængin löngu orðin súr af svita­lykt, óskap­legt brölt að koma sér í og úr og hita­stigið og súr­efn­is­magnið getur verið á alla vegu. En þetta er eitt­hvað svo frá­bært. Sjálf­sagt spilar það inn í þetta ást­ar­sam­band okkar koju að hún er eina afdrepið sem maður á. Maður hefur hvergi pri­vasí nema þá kannski rétt þegar maður sest niður til að kúka. En þarna, með henni koju, dregur maður fyrir tjaldið og er einn.

Ég vakn­aði svo um hádegi og þá var Flexi einn á fótum, fyrir utan Robert sem hélt um stýrið. Flexi hélt um stjórn­ar­taumana hjá Napoli í spjald­tölv­unni sinni á meðan. Fljót­lega tínd­ust menn svo fram og við fundum okkur vega­sjoppu. Þangað bár­ust okkur fregnir af plötu­dómi í Mogganum hvar við höfðum fengið 5 stjörnur fyrir nýju plöt­una okkar. Það er auð­vitað alltaf gaman að fá góða dóma en þeir hreyfa mis­mikið við manni. Orri Páll er maður sem hefur fylgt okkur frá upp­hafi og hann er líka maður sem segir hreint út hvað honum finnst. Honum myndi ég treysta til þess að rífa okkur í sig ef við værum að draga ein­hvern sora út úr óæðri end­anum. Þess vegna skipti það okkur öllu máli að hann skyldi fara svona fögrum orðum um plöt­una. Jón hlóð grein­inni niður og las upp­hátt í rút­unni þegar við lögðum af stað. Við vorum bara eins og litlir strákar. Þetta er bara svona og þetta má ekki breyt­ast. Þessi barns­lega gleði. Djöfull er gaman að vera í Skálmöld.

Ég var hálf­fram­lágur og lagði mig. Ég er að lesa nýju bók­ina hans Stefáns Mána, Litlu dauð­arnir. Hún er drullu­fokk­ing­skemmti­leg og ég las mig í svefn í koj­unni. Ég vakn­aði svo bara hér í Toulouse seinni­part­inn. Leggirnir eru langir þessa dag­ana og það mæðir mikið á Robert. Núna sit ég í rút­unni fyrir utan tón­leika­stað­inn og við erum rétt að segja að leggja í hann. Baldur, Böbbi og Gunni eru fyrir utan rút­una og Robert er að klára að borða smá. Hinir eru í koju. Þetta verður ekki örlaga­kvöld sýn­ist mér. Reyndar var Böbbi að hlamma sér við hlið­ina á mér og hann er nú í stuði. Sjáum til, sjáum til. Ég sull­aði örlít­illi viskilögg í kaffið mitt áðan, kaffið sem Gunni bjó til handa mér með allri ást mögu­legri. Þeir sem lásu bloggið í fyrra muna kannski eftir leit­inni ógur­legu að kaffi­kvörn á síð­asta túr. Sú leit bar ekki árangur en eitt sinnið er við spil­uðum í Borg­ar­leik­hús­inu fengum við kvörn að gjöf frá Christine og Guð­brandi, fólki sem til­heyrir hinum glæsi­lega hópi fólks sem kennir sig við Börn Loka. Þessi gjöf er fal­leg. Þetta er svona hand­snúin kvörn upp á gamla mát­ann og hún var vígð fyrir sirka hálf­tíma. Meist­ara­legt. Kaffið sem ég er að drekka er alveg asna­lega gott. Takk fyrir þessa osom gjöf krakkar!

Og talandi um Börn Loka. Við sjáum fólk úr aðdá­enda­klúbbnum reglu­lega á tón­leikum og fólki fjögar sem virki­lega þekkir okkur og jafn­vel syngur með. Við erum ennþá litla bandið, en kannski ekki alveg eins litlir lengur.

[caption id="attachment_11575" align="align­right" width="200"] Það er kannski þröngt í rút­unni, en menn eru sáttir.[/caption]

Mórall­inn er allur að koma til. Rúss­arnir eru í mjög miklu stuði og þetta virð­ist vera orðið allt annað band en við túruðum með 2011. Þau tala betri ensku og eru bara glað­ari í alla staði. Það er betra svona og vin­skap­ur­inn sem mynd­að­ist þá, sem manni fannst kannski ekki svo óskap­lega sterkur, hefur heldur betur haldið. Þetta er fal­legt fólk og við skipt­umst á diskum í dag. Gít­ar­leik­ar­inn Sergei, sem hefur alltaf það fas að hann sé að fara í stríð, sagði okkur hreint út að fyrsta platan okkar væri best, þessi nýja væri næst­best. Gott að hafa þetta bara á hreinu. Elu­veitie-krakk­arnir eru líka glæsi­legir. Þar á bæ virð­ist þó hanga yfir þetta ástand sem ég á erfitt með að með­taka þegar hljóm­sveitir eru ann­ars vegar, en er svo óskap­lega algengt. Þau eru ekk­ert endi­lega vinir. Þau eru í við­skipta­sam­bandi. Þau tala ekk­ert endi­lega saman og að tala við ein­staka með­limi um hina í band­inu er oft og tíðum stór­und­ar­legt. Ég er í hljóm­sveit með bestu vinum mínum, litla bróður mínum meira að segja, og þetta eru menn sem mér þykir óskap­lega vænt um. Það verður að vera þannig. Ég full­yrði að þau í Elu­veitie lásu enga plötu­gagn­rýni upp­hátt í sinni rútu í dag. Það er sorg­legt. En þetta er óskap­lega ljóm­andi fólk. Þrási hafði á orði við þau að við þyrftum að fá þau til liðs við okkur ein­hvern tím­ann á túrnum, að þau sem spila á etnísku hljóð­færin myndu spila með okkur, og þá senni­lega í Kvaðn­ingu. Þau tóku nú heldur betur vel í það. Það braut ákveð­inn ís og mér skilst að Böbbi og Baldur hafi farið á trúnó með fiðlu­hæn­unni í kvöld. Þetta eru góðir krakkar, allt þetta lið á túrnum. Æi það er gott, það er hel­víti langt eftir.

Böbbi er fullur. Það er gaman. Jón var að skríða fram og nú eru Þrási og Flexi í koju, við hinir frammi. Þetta var frá­bær dagur og það er frá­bært að vera við. Við erum nýlagðir af stað og spilum í Rennes á morgun. Þangað er hel­víti langt, túrplanið sagði 699 km. Nú er gott að hafa vél­menni við stýrið.

Meist­ara­legt dags­ins: Alger­lega frá­bært gigg!

Sköll dags­ins: Við vorum að leggja af stað. Ég þarf að pissa ...

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár