1800 mun krefja Já um tugi milljóna króna í skaðabætur

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Já hf. hafi mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína á mark­aði fyrir rekstur og heild­sölu­að­gang að síma­núm­era­gagna­grunni fyr­ir­tæk­is­ins. Eft­ir­litið hefur lagt 50 millj­óna króna stjórn­valds­sekt á Já vegna þessa, en upp­lýs­inga­veitan 1800 kærði Já til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna meintra brota fyrir þremur árum.

Sigríður Margrét Odds­dóttir, for­stjóri Já, segir fyr­ir­tækið for­viða á nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, og ákvörðun þess sé eins­dæmi í Evrópu og fyr­ir­tæk­inu óskilj­an­leg. Já hf. hefur til­kynnt að nið­ur­stöð­unni verði áfrýjað til áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála.

Andri Árnason, for­stjóri 1800, segir fyr­ir­hug­aða áfrýjun Já ekki hafa komið á óvart. "Já hefur sagt nei aftur og aftur í þessu máli, sem nú er búið að taka þrjú ár. Fyr­ir­tækið hefur gert allt sem það getur til að tefja málið, enda hags­munir fyr­ir­tæk­is­ins að það tefj­ist sem lengst. Fyr­ir­tækið mun áfram reyna að hindra fram­gang ákvörð­un­ar­innar eins lengi og það getur, á kostnað neyt­enda," segir Andri í sam­tali við Kjarnann.

Að loknu áfrýj­un­ar­ferli máls­ins hyggst 1800 krefja Já hf. um tugi millj­óna króna í skaða­bætur. "Í dag vitum við ekki hvað skaða­bótakrafan mun hljóða upp á, en við teljum að á okkur hafi verið gróf­lega brotið með yfir­verð­lagn­ingu Já á sínum tíma, og það hafi valdið okkur miklum skaða. Núna ætlum við leggj­ast yfir málið með end­ur­skoð­anda okkar og lög­fræð­ingi til að meta tjón okkar vegna þessa."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár