Sigríður Margrét: „Við erum forviða á þessari niðurstöðu“

„Við erum for­viða á þess­ari nið­ur­stöðu, þessi ákvörðun er eins­dæmi í Evrópu og okkur algjör­lega óskilj­an­leg. Ekkert sam­bæri­legt félag og Já í Evrópu ber kvaðir eins og þær sem íslenska Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur nú lagt á Já. Samkvæmt ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins áttum við að kaupa gögn á 100% verði af síma­fyr­ir­tækj­unum en selja þau aftur á 3%. Það er öllum fyr­ir­tækjum í lófa lagt að semja beint við síma­fyr­ir­tækin líkt og aðilar hafa þegar gert – en hver gengur til slíkra samn­inga þegar þeim er gert kleift að kaupa gögnin á und­ir­verði af okkur?“ segir Sigríður Margrét Odds­dóttir, for­stjóri Já, í til­kynn­ingu, vegna þeirrar ákvörð­unar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að sekta Já um 50 millj­ónir vegna meintra brota á sam­keppn­is­lögum, sem greint var frá fyrr í dag.

Ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins gengur þvert á fyrri nið­ur­stöðu Úrskurð­ar­nefndar fjar­skipta- og póst­mála, segir í til­kynn­ingu frá Já, en nefndin tók undir sjón­ar­mið Já um að það sé fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna sem úthluta síma­núm­erum að veita heild­sölu­að­gang að slíkum gögnum. „Tvær eft­ir­lits­stofn­anir hafa þannig kom­ist að sitt­hvorri nið­ur­stöð­unni í mál­inu,“ segir í til­kynn­ingu frá Já.

Já hefur boðið gögnin til end­ur­sölu sam­kvæmt verð­skrá sem kynnt var Sam­keppn­is­stofnun árið 1998 án athuga­semda. Í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu er það sagt vekja furðu að sama stofnun kom­ist nú að annarri nið­ur­stöðu. „Við höfnum því alfarið að Já hafi mis­beitt meintri mark­aðs­ráð­andi stöðu sinni á þessum mark­aði. Við höfum aldrei neitað neinum um aðgang að gagna­grunni okkar og verð­skráin mið­ast við raun­kostnað. Við munum að sjálf­sögðu áfrýja mál­inu til úrskurð­ar­nefndar sam­keppn­is­mála og dóm­stóla ef þess þarf.“ segir Sigríður Margrét enn fremur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár