Já gert að greiða 50 milljónir í stjórnvaldssekt

Í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem birt er í dag, er kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Já hf. hafi mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína á mark­aði fyrir rekstur og heild­sölu­að­gang að gagna­grunni yfir síma­númer,“ segir í til­kynn­ingu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna þeirrar ákvörð­unar að sekta fyr­ir­tækið Já, um 50 millj­ónir króna vegna brota á sam­keppn­is­lögum.

Í til­kynn­ing­unni segir enn­fremur að félagið hafi brotið gegn lögum með hátt­semi sem beind­ist gegn mögu­legum keppi­nautum félags­ins á smá­sölu­mörk­uðum fyrir upp­lýs­inga­þjón­ustu sem byggir á aðgangi á umræddum gagna­grunni.

Enn fremur segir í til­kynn­ing­unni: „Að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hefur verð­lagn­ing Já fyrir aðgang að gagna­grunn­inum verið óhóf­leg og til þess fallin að úti­loka sam­keppni. Með verð­lagn­ing­unni hafi Já í raun synjað mögu­legum keppi­nautum um aðgang að ómissandi aðstöðu félags­ins og þannig við­haldið eða styrkt mark­aðs­ráð­andi stöðu sína. Fyrir liggur að þeir sem hugð­ust nýta gagna­grunnin með þeim hætti að leitt gæti til sam­keppni við Já, var gert að greiða mun hærra verð en þeim sem engin sam­keppn­is­leg ógn stóð af. Já bauð slíkum aðilum verð sem var tugum millj­óna króna lægra á árs­grund­velli fyrir aðgang að sömu upp­lýs­ingum. Háttsemi Já að þessu leyti er hvorki mál­efna­leg né sann­gjörn og ekki í sam­ræmi við þær kröfur sem hvíla sam­kvæmt sam­keppn­is­lögum á fyr­ir­tæki í yfir­burða­stöðu. Vegna þess­ara brota er Já gert að greiða stjórn­valds­sekt að fjár­hæð kr. 50 millj­ónir króna í rík­is­sjóð,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Í til­kynn­ingu frá 1800, sem upp­haf­lega kærði Já vegna meintra brota, segir Andri Árnason í til­kynnningu, að nið­ur­staðan sé mikið fagn­að­ar­efni.

„Þriggja ára bar­áttu 1800 er nú loks­ins lokið með fulln­að­ar­sigri. Neyt­endur hafa val­kosti – þeir geta valið 1800 til þess að fá upp­lýs­ingar og aðstoð. Þetta er sigur fyrir 1800 en ekki síður fyrir neyt­endur sem fá loks­ins alvöru sam­keppni, val­kosti og lægra verð. Þessi úrskurður er mikið gleði­efni fyrir 1800 sem hefur barist fyrir virkri sam­keppni á þessum mark­aði árum saman. Aðal­at­riðið er þó að neyt­endur höfðu sigur – enn einn ein­ok­un­ar­múr­inn er fall­inn,“ segir í til­kynn­ingu frá Andra fyrir hönd 1800.

Fréttin verður upp­færð eftir því sem frek­ari upp­lýs­ingar ber­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár