Þriðjungur þjóðarinnar styður ríkisstjórn Sigmundar Davíðs

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Íslands mælist nú 33 pró­sent. Það hefur minnkað um 1,3 pró­sentu­stig frá því síð­ari hluta októ­ber­mán­aðar. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR sem birt var í morgun.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt könn­un­inni. Alls sögður 23,6 pró­sent aðspurðra myndu kjósa hann í dag, sem er tölu­vert minna en í síð­ustu mæl­ingu MMR, sem lauk 21. októ­ber síð­ast­lið­inn. Þá sögð­ust 26,1 pró­sent aðspurðra að þeir myndu kjósa flokk­inn.

Björt fram­tíð er næst stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt könn­un­inni með 18,6 pró­sent fylgi. Sam­fylk­ingin mælist með 16,1 pró­sent fylgi og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 12,3 pró­sent. Píratar mæl­ast með 11,3 pró­sent fylgi og Vinstri-grænir með 10,7 pró­sent. Fylgi ann­arra mögu­legra stjórn­mála­fram­boða mælist undir tveimur pró­sentum.

Stuðningur við ríkisstjórnina aldrei minni


Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sem sam­anstendur af Fram­sókn­ar­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokknum, mælist nú 33 pró­sent og hefur aldrei mælst lminni í könn­unum MMR. Þegar best lét, í byrjun júní 2013, mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 59,9 pró­sent. Stuðn­ing­ur­inn hefur því tæp­lega helm­ing­ast. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina er minni en stuðn­ingur við rík­is­stjórn Geirs H. Haarde, sem sam­an­stóð af Sjálf­stæð­is­flokknum og Sam­fylk­ingu, mæld­ist í des­em­ber 2008. Sú rík­is­stjórn, sem sprakk nokkrum vikum síðar, mæld­ist þá með 34,5 pró­sent stuðn­ing.

Núver­andi rík­is­stjórn á smá í að ná óvin­sældum rík­is­stjórnar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, sem sam­an­stóð af Sam­fylk­ingu og Vinstri-grænum. Í síð­ustu stuðn­ings­mæl­ingu þeirrar rík­is­stjórnar mæld­ist stuðn­ingur við hana ein­ungis 31,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár