Pæling dagsins: Samfylking „elítunnar“ ekki í stéttabaráttunni

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Læknar eru enn í verk­falli, tón­list­ar­kenn­arar líka, háskóla­pró­fess­orar eru á leið í verk­fall að óbreyttu og framundan eru erf­iðar kjara­samn­ings­við­ræður. Ein­hverra hluta vegna er Sam­fylk­ingin, sem á að heita flokkur jafn­að­ar­mennsku og félags­hyggju, með sterk tengsl við verka­lýðs­for­yst­una og hags­muna­sam­tök opin­berra starfs­manna, gjör­sam­lega lömuð í þessum aðstæðum.

Í það minnsta er það mat bréf­rit­ara að Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, hafi lítið þurft að hafa fyrir því að tjá sig um þessi mál út á við og hafa stjórn á póli­tískri atburða­rás þess. Jafnvel þó fjöl­menn mót­mæli eigi sér stað, þar sem stöðu mála er mót­mælt kröft­ug­lega, þá er stjórn­ar­and­staðan ekki með neinn byr í seglin.

Sam­fylk­ingin er þar sér­stak­lega slöpp. Hún er alltaf að eyða púðri í Evr­ópu­sam­bandið þrátt fyrir að löngu sé ljóst að það er ekki póli­tískur mögu­leiki að Ísland verði hluti af því í nán­ustu fram­tíð. Sá mögu­leiki er óra­fjarri (og vel hugs­an­legt að það hafi verið mik­ill póli­tískur afleikur hjá Sam­fylk­ing­unni að beita sér fyrir inn­göngu og sækja um aðild, með veikan stuðn­ing. Það hefur kannski grafið enn meira undan mögu­leik­anum á því að aðild­ar­við­ræður verði ein­hvern tím­ann lykta leiddar). Af þeim sökum ætti flokk­ur­inn að koma sér fyrir meðal þeirra stétta sem eru að berj­ast fyrir betri kjörum og aðstöðu, jafn­vel þó að það sé mat for­ystu flokks­ins að lang­tíma­hags­munir heild­ar­innar séu best tryggðir með ESB aðild. En það gerir hann ekki, nema að veikum mætti. Sam­fylk­ingin hefur yfir­bragð elítu-flokks með litla teng­ingu við fólkið á gólf­inu. Allt hjálpar þetta rík­is­stjórn­inni að koma sínum stefnu­málum áfram. Hin póli­tíska fyr­ir­staða er lítil sem engin. Ein­hverra hluta vegna...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár