Meðallaun í Seðlabanka námu hátt í 700.000 krónum árið 2013

Samkvæmt skil­grein­ingu Hagstofu Íslands á reglu­legum launum, fékk hver starfs­maður Seðla­banka Íslands að með­al­tali 692.143 krónur í laun á mán­uði árið 2013. Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Þor­steins Sæmunds­sonar, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Regluleg laun, sam­kvæmt skil­grein­ingu Hagstofu Íslands, eru greidd laun fyrir umsam­inn vinnu­tíma, hvort sem um er að ræða dag­vinnu eða vakta­vinnu. Í þessum launum eru hvers konar álags-, bónus- og kostn­að­ar­greiðslur, svo sem föst yfir­vinna og upp­mæl­ingar sem gerðar eru á hverju útborg­un­ar­tíma­bili. Við útreikn­inga er ekki tekið til­lit ákvæð­is­greiðslna, hlunn­inda, akst­urs­greiðslna né ann­arra óreglu­legra greiðslna.

Laun í Seðlabankanum hafa hækkað í takt við launaþróun


Auk þess að vilja vita með­al­heild­ar­laun starfs­manna Seðla­banka Íslands á árinu 2013, vildi Þor­steinn fá að vita hvernig laun í Seðla­bank­anum hafa þró­ast frá árinu 2008 sam­an­borið við laun félaga í ASÍ, BSRB og BHM á sama tíma­bili. Samkvæmt svari ráð­herra hafa laun í Seðla­bank­anum hækkað um 23,3 pró­sent á tíma­bil­inu, á meðan laun hjá ASÍ hækk­uðu um 27,3 pró­sent, innan vébanda BSRB um 23,6 pró­sent og hjá BHM um 21,7 pró­sent á sama tíma. Seðla­bank­inn gerði reyndar fjöl­marga fyr­ir­vara við sam­an­burð­inn.

Í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kemur jafn­framt fram að með­al­laun aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra og fram­kvæmda­stjóra sviða innan Seðla­bank­ans hafi numið 1.433.220 krónum á mán­uði árið 2013.

Sérstakar álagsgreiðslur óbreyttar síðan árið 2008


Laun aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra eru ákvörðuð af banka­ráði Seðla­bank­ans, í því efni hefur banka­ráð tekið mið af úrskurðum kjara­ráðs um launa­kjör seðla­banka­stjóra. Laun fram­kvæmda­stjóra sviða eru ákvörðuð af seðla­banka­stjóra, en hann hefur ekki tekið neina sér­staka ákvörðun varð­andi þau laun síðan um mitt ár 2007 að öðru leyti en varðar álag. Breyt­ingar á þessum launum hafa því ákvarð­ast af grunn­launa­hækk­unum í kjara­samn­ingum Samtaka starfs­fólks fjár­mála­fyr­ir­tækja, að því er fram kemur í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Þá kemur jafn­framt fram í svari ráð­herra að sumir fram­kvæmda­stjórar innan Seðla­bank­ans fái greitt álag sem er jafn­hátt þóknun banka­ráðs. Álagið hafi verið lækkað sam­hliða því þegar for­sæt­is­ráð­herra tók ákvörðun um lækkun þókn­unar banka­ráðs þann 29. des­em­ber árið 2008 og hafi verið óbreytt í krónu­tölu síðan. Að öðru leyti hafi einu breyt­ing­arnar á kjörum fram­kvæmda­stjóra verið þær að end­ur­skoðað hefur verið hvaða fram­kvæmda­stjórar njóta álags­ins í sam­ræmis varð­andi stærð sviða, ábyrgð þvert á bank­ann og kynja­jafn­réttis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár