Birna Einarsdóttir er markaðsmaður ársins

Árleg mark­aðs­verð­laun ÍMARK, sam­taka mark­aðs­fólks á Íslandi, voru afhent við hátíð­lega athöfn í hádeg­inu, en Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, veitti mark­aðs­manni og mark­aðs­fyr­ir­tæki árs­ins verð­laun fyrir árið 2014.

Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, hlaut verð­launin Mark­aðs­maður árs­ins. Verð­launin eru veitt þeim ein­stak­lingi, sem þykir hafa sýnt fram­úr­skar­andi árangur í mark­aðs­starfi á líð­andi ári. Við valið er leit­ast við að fá sem fjöl­breyttastar skoð­anir úr atvinnu­líf­inu.

Að þessu sinni voru fimm fyr­ir­tæki til­nefnd til verð­laun­anna Mark­aðs­fyr­ir­tæki árs­ins, það er Íslands­banki, Lands­bank­inn, Nova, Ölgerðin og Össur. Verð­launin eru veitt fyr­ir­tækjum sem hafa verið áber­andi í mark­aðs­málum á líð­andi ári og sannað þykir að hafi náð sýni­legum árangri. Valið byggir á ítar­legu ferli dóm­nefndar þar sem lagt er mat á fag­mennsku við mark­aðs­starfið, árangur og að fjár­hags­legt öryggi sé til staðar. Að þessu sinni hreppti fjar­skipta­fyr­ir­tækið Nova verð­launin.

 

ÍMARK hefur veitt Mark­aðs­verð­launin frá árinu 1991, en mark­mið þeirra er að stuðla að auk­inni fag­mennsku í mark­aðs­starfi íslenskra fyr­ir­tækja.


Nánari upp­lýs­ingar um Mark­aðs­verð­laun ÍMARK og vinn­ings­hafa fyrri ára er að finna á vef sam­tak­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár