20 spennandi sveitir á Airwaves

Hátíð fer að höndum ein, hana vér allir prýðum…

Í þetta sinn er erindi Jóhann­esar úr Kötlum reyndar raulað við nýstár­lega raf­tón­list á hæsta styrk í stað þjóð­lags­ins klass­íska – og hátíðin er Iceland Airwaves, ekki jólin.

Airwaves þarf auð­vitað ekki að kynna, hún hefur haldið fána nýrrar og spenn­andi tón­listar á lofti síðan ‘99 og er hvergi nærri hætt. Skoðum dag­skrána í ár aðeins betur.

[caption id="attachment_11399" align="alignnone" width="640"] Júníus Meyvant lét á Iceland Airwaves hátíð­inni í gær­kvöldi. Hann er einn þeirra íslensku tón­list­ar­manna sem miklar vonir eru bundnar við að fangi athygli út fyrir lands­stein­anna á hátíð­inni í ár.[/caption]

Íslenskt

Það er ekk­ert leynd­ar­mál að Íslend­ingar státa af frá­bærum tón­list­ar­mönnum, sumir myndu eflaust ganga svo langt að segja að við séum með bestu tón­list­ar­menn í heimi “per capita” (en ekki hvað). Þar sem von­laust er að þrengja hóp­inn í stuttri grein skulum við frekar beina sjón­unum að nokkrum spenn­andi sveitum sem aldrei hafa spilað á Airwaves áður og vert er að kanna nánar;

Ambátt
Meðlimir sveit­ar­innar hafa áður gert garð­inn frægan í raf­tón­list­ar­sen­unni á Íslandi með t.d. Beat­makin Troopa og Stereo Hypnosis

Dream Wife
Íslensk/bresk popp-grugg­sveit sem byrj­aði sem skóla­verk­efni í lista­há­skóla í Brighton.

Geislar
Sann­kölluð “súpergrúppa”, en með­limir hennar hafa verið með putt­ana í mörgum af betri hljóm­sveitum lands­ins.

Júníus Meyvant
Á hraðri upp­leið þessa dag­ana með auknum vin­sældum lags­ins “Color Decay” og vænt­an­legri plötu.

Kælan Mikla
Pönk og ljóð­list bind­ast órjúf­an­legum böndum í flutn­ingi hinna eit­ursvölu KM stelpna.

Lily the Kid
Fyrrum söng­kona Bloodgroup kemur tví­efld úr langri tón­list­ar­pásu sem Lily the Kid ásamt bróður sínum úr sömu sveit með silki­mjúka raf­tóna í fartesk­inu.

Óbó

Hann hefur spilað með flestum – Emilíönu Torrini, Sigur Rós, múm o.fl. - en fæstir hafa heyrt hans eigin tón­list enn sem komið er.

Tófa
Ný íslensk pönk-sveit sem sam­anstendur af með­limum sveita á borð við For a Minor Reflection og Rökkurró.

Uni Stefson
F
orsprakki Retro Stefson stígur fram á sjón­ar­sviðið sóló í fyrsta sinn með ljúfsárum lögum sem sýna aðra hlið á tón­list­ar­mann­inum.

Young Karin
Dúóið Young Karin bjóða upp á syk­ur­sætt raf­popp með gríp­andi lag­línum.

[caption id="attachment_11395" align="alignnone" width="640"] Gestir hátíð­ar­innar í dag verða um níu þús­und. Það er tæp­lega eitt þús­und fleiri en í fyrra.[/caption]

Erlent

Eitthvað er um stór nöfn á hátíð­inni í ár sem vert er að sjá, til að mynda Íslands­vin­irnir Flaming Lips og Caribou auk The War On Drugs, Future Islands og How To Dress Well - að ógleymdum allra síð­ustu tón­leikum The Knife!
Sjarmi Airwaves felst þó óneit­an­lega í því að kynn­ast nýjum tón­list­ar­mönnum sem eru við það að springa út, eins og þessum;

East India Youth
Eins­manns­band þetta skaust upp á sjón­ar­sviðið eftir að hafa afhent réttum aðila rétta tón­list á réttum tíma.

Ibibio Sound Machine
Samsuða marg­breyti­legra tón­list­ar­stefna mæt­ist hér og ekki er annað hægt en að taka nokkur dans­spor.

Jaakko Eino Kalevi
Sæka­del­ískir og til­rauna­kenndir tónar mat­reiddir á afbragðs hátt.

Jessy Lanza
Ein lista­manna hinnar virtu Hyperdub útgáfu sem gaf út frá­bæra plötu í fyrra.

Kelela
Banda­ríska RnB nýst­irnið hefur getið sér gott orð að und­an­förnu.

Perfect Pussy
Þessi nýstár­lega pönk­sveit gaf út frá­bæra plötu á árinu.

Son Lux
Hefur unnið með lista­mönnum sem eru eins mis­mun­andi og þeir eru margir og ber hljóð­heimur hans þess glöggt vitni.

Stara Rzeka
Áhuga­verð sveit sem blandar saman meló­díum og óhljóðum svo úr verður hin fín­asti kok­teill.

Thus Owls
Oft hefur verið sagt að vatnið í bæði Kanada og Svíþjóð sé gætt ein­hverjum sér­stökum tón­list­artöfrum – mýta sem deyr ekki með þess­ari sveit.

Tremoro Tar­antura
Norðmenn eru sér­fræð­ingar í dekkri hliðum tón­listar og er Tremoro Tar­antura engin und­an­tekn­ing.

Gleði­lega hátíð!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár