Tónlistar- og kvikmyndaveitur Google nú aðgengilegar á Íslandi

Tækniris­inn Google hefur form­lega til­kynnt að tón­listar- og kvik­mynda­veitur fyr­ir­tæk­is­ins séu nú orðnar aðgengi­legar almenn­ingi á Íslandi. Google póstaði ákvörðun sinni í gær á Google+. Frétta­vef­mið­ill­inn Venture Beat greinir frá mál­inu, og sömu­leiðis Nútíminn.

Ísland var í hópi níu þjóða sem fengu aðgang að kvik­mynda­veitu Google, Google Play, og í hópi þrettán þjóða sem nú hafa fengið aðgang að tón­list­ar­veitu fyr­ir­tæk­is­ins, Google Play music store. Í grein Venture Beat er vakin athygli á því að Apple hafi enn ekki veitt þremur þjóðum sem nú bætt­ust við þjón­ustu­svæði veitna Google, Íslandi, Makedóníu og Bosníu, aðgang að iTu­nes þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins og Google hafi litið á það sem sókn­ar­færi. Þar að auki hefur Apple ekki veitt Króatíu aðgang að tón­list­ar­hluta iTu­nes, en Króatía er á meðal þeirra þjóða sem nú hafa fengið aðgang að tón­list­ar­veitu Google.

Í dag hafa yfir hund­rað þjóðir aðgang að kvik­mynda­veitu Google. Tón­list­ar­veitu Google er stillt upp til höfuð Spotify, sem hefur sótt hratt fram á heims­vísu að und­an­förnu.

Samkvæmt frétt Nútímans er hægt að kaupa og leigja kvik­myndir í Google Play Movies, en sumar myndir sé ein­ungis hægt að kaua og þá sé algengt verð 1.500 til 2.000 krónur. Leigu­verð á kvik­myndum er frá 350 upp í 460 krónur fyrir nýj­ustu mynd­irnar sem kvik­mynda­veitan býður upp á. Hægt er að horfa á kvik­myndir Google Play Movies í tölvum, Android- og iOS-símum og þá er sömu­leiðis hægt að nota Chromecast bún­að­inn til þess að horfa á kvik­mynda­veit­una, en hann er nokk­urs konar svar Google við Apple TV, sem hefur náð tölu­verðri útbreiðslu á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár