Pæling dagsins: Gæti ríkið selt Kárahnjúkavirkjun?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Stundum koma fram hug­myndir um eigna­sölu hjá rík­inu, til þess að grynnka á skuldum eða styrkja fjár­hag rík­is­sjóðs, sem valda miklum póli­tískum titr­ingi. Það á svo sann­ar­lega við um Lands­virkjun. Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, hefur viðrað hug­myndir í þá veru að íslenskir líf­eyr­is­sjóðir myndu eign­ast hlut í Lands­virkjun á móti rík­inu, og ríkið þar með selja frá sér hlut í fyr­ir­tæk­inu. Virði þess, miða við 1 x eigið fé, er tæp­lega 200 millj­arðar króna. Það jákvæða við þessa sölu yrði fyrst og fremst tvennt. Í fyrsta lagi fengi ríkið umtals­vert fé til þess að greiða niður skuldir (nema að stjórn­mál­menn vilji dreifa þeim skipu­lega inn á verð­tryggð hús­næð­is­lán sumra, hver veit?) og líf­eyr­is­sjóð­irnir fengju mögu­leika á því að kaupa „erlenda eign“, það er eign með erlendu tekju­streymi. Þetta myndi vera æski­leg áhættu­dreif­ing fyrir líf­eyr­is­sjóð­ina. Ókost­irnir við þessa aðgerð eru ekki svo aug­ljósir að mati þess sem þetta skrifar - nema þá að líf­eyr­is­sjóð­irnir myndu eitt­hvað fara að spila með þessa eign og selja hana öðrum. Það er við­kvæmt mál á jafn litlum mark­aði og Íslandi. Það væri ein­fald­lega hægt að girða fyrir þennan mögu­leika með samn­ingi þar um. Það er, að eign­ar­hlutur líf­eyr­is­sjóð­anna í Lands­virkjun væri alltaf bund­inn til langs tíma, nema þá að ríkið ákveði að kaupa aftur. Ef þetta væri erfitt póli­tískt, þá ætti hugs­an­lega að vera hægt að koma með annan mögu­leika að borð­inu. Það er að ríkið selji Kára­hnjúka­virkjun sér­stak­lega, en hún er sett upp til að afhenda álveri Alcoa á Reyð­ar­firði raf­magn. Íslenska ríkið hefur ekki það grunn­hlut­verk að sinna áhættu­miklum afleiðu­við­skiptum sem tengd eru álverði. Líf­eyr­is­sjóð­irnir eru hins vegar með mikið magn sinna fjár­muna bundna í verð­bréfa­eignum sem hafa áhættu bundna í við­líka rekstri, meðal ann­ars erlendis. Með þessu myndi Lands­virkjun halda sínum helstu eignum, lands­net­inu sjálfu þar á meðal, alfarið hjá rík­inu, en tekju­streymið af þess­ari til­teknu virkjun færi hins vegar til líf­eyr­is­sjóð­anna, og á end­anum til almenn­ings, ein­falt á litið. Þetta gæti líka leitt til þess að umræðan um sölu á raf­orku um sæstreng færi upp úr skot­gröf­unum, þar sem stjórn­mála­menn vilja sumir hverjir halda henni. Á einka­rétt­ar­legum for­sendum gæti verið hægt að meta hags­mun­ina af því að selja álverum raf­orku, eða um sæstreng til Bret­lands t.d. Það myndi draga betur fram hvaða hags­munir væru í húfi. En þessi pæl­ing er lík­lega sjálf­dauð. Stjórn­mála­menn hafa ekki nógu mik­inn áhuga á þessu. Enn sem komið er...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár