Ekkert að óttast, Gallarnir eru mættir

Þorgeir Tryggva­son, Toggi, mun sinna bókaum­fjöllun fyrir Kjarnann fram að jólum en margar bækur eru að koma út þessa dag­ana. Jóla­bóka­flóðið nær svo hámarki í des­em­ber.

Að þessu sinni er fjallað um Ástrík og vík­ing­ana.

 

Ástríkur og víkingarnir


Höfundar: René Goscinny og Albert Uderzo

Þýðandi: Hildur Bjarna­son

Froskur útgáfa

Að skrifa gagn­rýni um Ást­ríks­bók er sér­kenni­leg reynsla. Svolítið eins og að skrifa um kókó­mjólk, svo sam­ofnar bæk­urnar, per­són­urnar og húmor­inn í þeim var orðin mér strax í æsku. Ekki bara sér­kenni­leg, heldur dálítið ónota­leg. Vill maður kryfja að sem maður elskar? Langar ein­hvern að vita hvað er nákvæm­lega í kókó­mjólk­inni? Jæja, sjáum til.

Ég fletti enn gömlu bók­unum, alla­vega þeim sem eru í mestu upp­á­haldi (Bænda­glímunni, Gotunum, Róm­verska flugu­mann­inum) og skemmti mér. Að ein­hverju leyti af þáþrá, en líka bara í krafti þess að þetta er frá­bært. Per­sónugall­er­íið, vink­ill­inn á mann­kyns­sög­una, húmor­inn.

Já hann er líka dýr­mætur, léttir­inn yfir því að það sé hægt að vera lít­ill, ein­angr­aður og pínu vit­laus en samt ósigr­andi.

Nokkrar af hinum „klass­ísku“ Ást­ríks­bókum komu aldrei út á sínum tíma, en útgáfu­röðin á Íslandi stýrð­ist senni­lega af ein­hverjum sam­prents­kenjum sem okkur voru huldar. En nú hefur bóka­út­gáfan Froskur tekið til við að fylla í skörðin og hafi hún heitar þakkir fyrir. Fyrst í röð­inni verður „Ástríkur og vík­ing­arnir“, eða „Astérix et les Normands“ eins og hún heitir í frum­mál­inu. Þær verða ekki mikið klass­ísk­ari, vík­inga­bókin er sú níunda í röð­inni, kemur út 1966 á milli Ástríkur í Bret­landi og Ástríkur í Útlend­inga­her­sveit­inni.

Og er alveg stór­skemmti­leg. Frændi Aðalríks höfð­ingja sendir honum í fóstur land­eyðu­hneigðan son sinn og á sama tíma sigla að strönd­inni vík­ingar sem hafa náð tökum á öllu nema ótt­anum. Þeir kunna sem­sagt ekki að hræð­ast og hafa fyrir vikið þennan eig­in­leika í hávegum og vilja fyrir alla muni eign­ast hræðsl­una eins og allt annað. Þegar skræfan frá Lútesíu og hinir ótta­heftu norð­an­menn mæt­ast þá hlýtur eitt­hvað að ger­ast.

Ætli Gaul­verj­ar­bær sé ekki eins vondur staður til að kom­ast til manns og hugs­ast getur? Og glóru­laus staður til að læra að ótt­ast. Það eru vænt­an­lega ekki alvar­leg sögu­spjöll þó ég ljóstri því upp að þetta fer allt vel eins og alltaf og aldrei þessu vant fær fær atónal söngvaskáldið Óðríkur að taka þátt í loka­veisl­unni, enda ein af hetjum sög­unnar þegar upp er staðið.

Þrátt fyrir að eft­ir­litið með þýð­ing­unum sé víst orðið mun strang­ara en það var á gull­ald­ar­tíma Þor­björns Magn­ús­sonar og Þor­steins Thoraren­sen þá nær Hildur Bjarna­son að vera ágæt­lega sniðug, t.d. í nöfnum Vík­ing­anna, sem öll enda á –ráð. Gaman líka að mat­ar­venjum þeirra, en það eru hinir aðskilj­an­leg­ustu réttir sem allir eru í rjómasósu. Ég hef ekki hug­mynd um hvernig á þessu stendur eða hvað grínið á að fyr­ir­stilla, en það er bara samt snið­ugt að sjá hina ribb­alda­legu norð­menn háma í sig rjóma­lag­aða dýr­ind­is­rétti, og skola þem niður með miði úr höf­uð­kúpum fall­inna.

Þetta er mögu­lega heim­speki­leg­asta Ást­ríks­bókin og dálítið frum­legur vink­ill í henni á hið forna minni um mik­il­vægi þess að kunna að hræð­ast. Merki­legt nokk þá er hún stór­skemmti­leg líka. Vonandi end­ist Froski útgáfu orka og erindi til að fylla í öll hin skörðin. Söfnurum og aðdá­endum skal samt bent á að talið er úti­lokað að leyfi fáist til að end­ur­út­gefa hinar klass­ísku þýð­ingar, svo haldið fast í gömlu dýr­grip­ina og/eða verð­leggið eftir því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár