Þrívídd fyrir unga fólkið

Þrívídd er nýr vef­mið­ill sem stofn­aður var til að gefa ungu fólki vett­vang til að koma skoð­unum sínum, hugs­unum og list­greinum á fram­færi. Heima­síða Þrí­víddar er í senn ein­föld og smekk­leg, en fólkið á bak­við hana er á aldr­inum 16 til 25 ára, að því er fram kemur í ágripi heima­síð­unnar. Samkvæmt henni hefur hópur af ólíku fólki unnið hörðum höndum í sjálf­boða­starfi að gerð síð­unnar und­an­farna mán­uði.

Rit­stjórn Þrí­víddar skipa Ása Bríet Bratta­berg, Sóley Sig­ur­jóns­dóttir, Stefán Ingvar Vig­fús­son og Þor­steinn Eyfjörð. Ása og Sóley eru átján ára, Stefán Ingvar er 21 árs og Þor­steinn er nítján ára gam­all.

Hópur sem vill reyna að bæta samfélagið


"Hug­myndin að Þrívídd kom því okkur fannst vanta vett­vang fyrir rödd unga fólks­ins í fjöl­miðlum, hvort sem það væri til að fjalla um mál­efni sem tengj­ast ung­mennum eða til að koma ungum lista­mönnum á fram­færi. Mið­ill­inn er þess vegna hugs­aður sem opinn vett­vangur fyrir mál­efni og menn­ingu ung­menna þar sem allir geta kom­ist að og tekið þátt." Þetta segir Ása Bríet Bratta­berg, í sam­tali við Kjarnann.

[quote font="0" align="right"]"Það er ótrú­lega skemmti­legt að sjá hvað það er mikið af ungu hæfi­leik­a­ríku fólki á Íslandi sem er að gera spenn­andi hluti."[/quote]

Ása segir stóran hóp koma til með að skaffa efni fyrir Þrívídd. "Hópurinn sam­anstendur af mjög ólíkum ein­stak­lingum á mis­mun­andi aldri, sem allir eiga þó sam­eig­in­legt að vilja reyna bæta sam­fé­lagið; hvort sem það er með því að koma efni­legum lista­mönnum á fram­færi eða gagn­rýna mál­efni sem eru þeim mik­il­væg. Hópurinn er kom­inn hátt í 50 manns af pennum, ljós­mynd­urum, mat­ar­blogg­urum, auk þess sem við tökum alltaf við aðsendum greinum, en við erum alltaf opin fyrir að stækka hóp­inn."

Hafa fjármagnað verkefnið úr eigin vasa til þessa


Fram til þessa hefur hóp­ur­inn sem stendur að Þrívídd fjár­magnað verk­efnið úr eigin vasa. "Í byrjun lögðum við sjálf út fyrir öllu á bak­við síð­una, en í næsta mán­uði ætlum við einmitt að halda okkar fyrsta Þrí­vídd­ar­við­burð sem verður bæði til fjár­mögn­unar fyrir síð­una og góð afþrey­ing fyrir spræka fólkið. Hann verður nánar aug­lýstur síðar."

Ása Bríet segir aðstand­endur Þrí­víddar leita í sífellu að nýjum hug­myndum til að bæta vef­síð­una. Hún segir að Þrívídd ætli sér að vera rödd unga fólks­ins í fjöl­miðlum. "Það er ótrú­lega skemmti­legt að sjá hvað það er mikið af ungu hæfi­leik­a­ríku fólki á Íslandi sem er að gera spenn­andi hluti. Það virð­ist oft gleym­ast að ung­menni hafa líka skoð­anir, sér­stak­lega á mál­efnum sem koma þeim við, eins og hag­munum stúd­enta, stytt­ingu náms til stúd­ents­prófs og öld­unga­deild. Allt eru þetta mál­efni þar sem ung­menni eru í brennid­epli."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár