Hinn holdlegi kraftur

Þorgeir Tryggva­son, Toggi, mun sinna bókaum­fjöllun fyrir Kjarnann fram að jólum en margar bækur eru að koma út þessa dag­ana. Jóla­bóka­flóðið nær svo hámarki í des­em­ber.

Að þessu sinni er það bókin Stund­ar­fró, eftir Orra Harð­ar­son sem er til umfjöll­unar.

Stund­ar­fró

Höfundur: Orri Harð­ar­son

Útgáfa: Sögur útgáfa

Ritgleði ein­kennir þessa fyrstu skáld­sögu Orra Harð­ar­sonar. Hann nýtur þess að segja þessa sögu sem fyrir vikið verður létt og hrað­fleyg þó við­fangs­efnin séu ef grannt er skoðað alls engin froða, og hann ekk­ert að reyna að láta líta svo út.

Þó sögu­sviðið sé Inn­bær­inn á Akureyri, 101 Reykja­vík og Strikið í Kaup­manna­höfn en ekki ver­búð eða lúkar þá eru við­fangs­efnin þau sömu og í Hrognin eru að koma hjá Bubba, slags­mál, ríð­ingar, fyll­erí. Eða í mik­il­væg­is­röð: Fyllerí, ríð­ingar, slags­mál.

Það sleppur eng­inn létt frá þessum dansi, þó skemmt­ana­skatt­ur­inn legg­ist af mis­mun­andi þunga á per­són­urnar. Er það ekki alltaf þannig

Stund­ar­fró togar í nostal­gýgju­streng­ina í tauga­kerfi manns sem eyddi stórum hluta af árum 17 til 20 á Akureyri með sann­fær­andi lýs­ingum á líf­inu þar. Ég sé að menn hampa bók­inni fyrir að vera fyrsta skáldsagan í langan tíma sem ger­ist þar í bæ og gerir and­rúms­loft­inu þar áhuga­verð skil. Undir það get ég tekið. Upp­hafs­hluti bók­ar­innar, og þeir sem síðar koma og fjalla um lífið á eyr­inni eru „spot-on“. Það sama verður að segja um gæða­blóðið Agnar Má, sem Dísa, ein þriggja meg­in­per­sóna bók­ar­innar, tekur saman við eftir að önnur þeirra, skáldið Arin­björn Hval­fjörð, gengur henni úr greipum. Það er eitt­hvað dásam­lega „akur­eyrskt“ við mann­inn, og í frá­sagn­ar­fjör­inu í kringum hann minnir Orri mig einna helst á Einar Kárason. Víðar reyndar.

Ein leið til að greina Stund­ar­fró er að horfa á hana sem þrí­leik, með þremur stórum „senum“ þar sem hver aðal­per­sóna um sig fær að skína í sínum hluta. Upp­hafs­hlut­inn á Akureyri er með ömm­una Aðal­steinu í miðju þó atburða­rásin hverf­ist um næturæv­in­týri barna­barns­ins í kjall­ar­anum og ungskálds­ins að sunnan, en þó ekki síst um alkó­hólista­hegðun skálds­ins. Mið­part­ur­inn segir frá Dísu, höf­uð­borg­ar­heim­sókn hennar til að end­ur­heimta elsk­hug­ann, og er nán­ast hrein­rækt­aður farsi. Í lokakafl­anum - Arin­bjarn­ar­kafla - víkur sög­unni til Kaup­manna­hafnar þar sem skáldið býr við illan kost og handan við brenndar brýr. Harm­leikur hans snýst upp í hálf­gert meló­drama þegar Dísa og hennar fjöl­skylda heim­sækir okkar forna höf­uð­stað.

Innan um og með­fram þessum þremur stólpu ger­ist auð­vitað margt og mikið, per­són­urnar ýmist sigla lífi sínu í strand eða kosta því til sem þarf til að koma því áfram.

Per­sónu­sköpun, and­rúms­loft, plott. Allt fínt. Kannski má kvarta smá yfir að for­tíð­ar­saga og inn­gangs­lýs­ing Aðal­steinu ömmu vanti ein­hvers­konar lokun í bók­ar­lok. Eins getur far­sa­kennd atburða­rás mið­hlut­ans og meló­dramat­ísk enda­lokin stuðað. Vel má ímynda sér að það stíl­bragð að vitna títt í popp­söng­texta þreyti ein­hverja les­endur. Þeir pirr­uðu mig ekki, þó fyrr­nefndu atriðin tvö hafi mér þótt vera á lín­unni með að skemma sög­una.

Þegar upp er staðið er þetta samt aðal­lega kröftug og úthugsuð saga sem skemmtir, hlægir og hryllir mann. Gott mál bara.

Eitt af vel heppn­uðum stíl­brögðum Orra er lýs­ingin á sjálfs­blekk­ingu drykkju­bolt­ans Arin­bjarnar:

„Innra með honum mætt­ust gjarnan nokk­urs konar meiri­hluta­stjórn og stjórn­ar­and­staða. Máli beggja tal­aði hann sam­visku­sam­lega en gætti þess þó jafnan að stjórnin hefði and­stöð­una undir. Sú síð­ar­nefnda var einatt rödd skyn­sem­innar. Það var sjaldn­ast heill­andi að halda með henni. Og oft lét Arin­björn hana leið­ast út i eitt­hvert ömur­legt mál­þóf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár