Forseti ASÍ segir Sigmund Davíð á flótta undan veruleikanum

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, sat fyrir svörum í sjón­varps­frétta­tíma RÚV í gær­kvöldi, vegna mót­mæla gegn rík­is­stjórn­inni sem þá fóru fram á Aust­ur­velli.

Aðspurður um kjara­deilu lækna og rík­is­ins og hvort til greina komi að setja lög á verk­fall lækna, svar­aði for­sæt­is­ráð­herra: "Það hefur ekk­ert verið rætt, sú hug­mynd hefur ekki einu sinni komið upp. En vegna þess að þetta teng­ist að sjálf­sögðu allt, og kjör fólks hald­ast í hendur á þann hátt að ef menn fara of bratt í hlut­ina þá tekur verð­bólgan allt til baka, þá væri mjög gagn­legt að heyra til dæmis afstöðu ASÍ til þess hvort að menn telji þar rétt­læt­an­legt að ráð­ast í meiri launa­hækk­anir hjá læknum til þess að verja heil­brigð­is­kerfið, heldur en hægt er í fyrsta áfanga að ráð­ast í ann­ars staðar."

Forsætisráðherra sem kemur sífellt á óvart


Gylfi Arn­björns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) furðar sig á ummælum for­sæt­is­ráð­herra og bendir á að ríkið hafi nýverið hrundið af stað vænt­ingum um umtals­verðar kjara­bætur á vinnu­mark­aði með samn­ingum rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga við kenn­ara. "Maður ætti auð­vitað að hætta að láta sér bregða við ummæli for­sæt­is­ráð­herra, en það er nú samt þannig að hann kemur manni alltaf sífellt meira á óvart. Við gerðum okkar kjara­samn­inga fyrir tæpu ári síðan, um 2,8 pró­senta launa­hækkun, sam­hliða sam­komu­lagi við stjórn­völd um að halda aftur af ýmsum stærðum efna­hags­mála. Nú fór það síðan þannig að þegar við vorum búin að semja fyrir alla stærstu hópanna, það er lægst­laun­uð­ustu hópanna innan vébanda BSRB og ASÍ, ákvað ríkið að semja við kenn­ara um þrjá­tíu pró­senta launa­hækkun."

Fleiri munu sækja sér umtalsverðar kjarabætur


Gylfi vill ekki kveða úr um hvort launa­kröfur lækna séu rétt­mætar, en ljóst sé að fleiri en læknar muni sækj­ast eftir kjara­bótum á borð við þær sem kenn­arar fengu í gegn. "Með því að leita eftir afstöðu okkar til kjara­deilu lækna er Sig­mundur Davíð bara að reyna að koma sér undan sinni ábyrgð á því að hafa sett þróun kjara­mála í þennan far­veg. Mér finnst ekk­ert órétt­mætt að aðrir muni sækja eftir sam­bæri­legum kjara­bótum, enda ekk­ert hægt að segja að sumir hafa rétt­mætar vænt­ingar til þrjá­tíu pró­senta lífs­kjara­bóta en aðrir ekki," segir Gylfi í sam­tali við Kjarnann.

"Hann (Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son) er bara á flótta undan veru­leik­anum. Hann getur ekki flúið sína eigin stefnu­mörkun og ákvarð­anir með því að vísa til Alþýðu­sam­bands­ins. Hann verður bara að sitja uppi með það að rík­is­stjórnin hans sam­þykkti þennan far­veg við kenn­ara og það er sá far­vegur sem kjara­mál allra lands­manna eru í í dag. Við töldum aðra leið far­sælli, en það hefur ekki náðst sam­staða um hana og rík­is­stjórnin sá ekki ástæðu til að fylgja henni eftir. Þar situr ábyrgðin."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár