Nemendafélög MR mótmæla styttingu framhaldsskólanáms

Stjórnir nem­enda­fé­laga Mennta­skól­ans í Reykja­vík, það er Skóla­fé­lags­ins og Fram­tíð­ar­innar, hafa sent Illuga Gunn­ars­syni, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, opið bréf þar sem áformum hans um stytt­ingu náms í fram­halds­skólum er mót­mælt. Bréfið hefur sömu­leiðis verið sent til nefnd­ar­manna og mennta­mála­nefndar Alþingis. Bréfið má lesa hér að neðan.

Opið bréf til menntamálaráðherra


Eitt helsta bar­áttu­mál Illuga Gunn­ars­sonar, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, er að stytta náms­tíma í fram­halds­skólum úr fjórum árum í þrjú. Við und­ir­rituð mót­mælum þessum hug­myndum og bendum á nokkra ókosti þess að breyta íslensku mennta­kerfi með þessum hætti. Markmið ráð­herr­ans er að árið 2018 verði hlut­fall þeirra sem útskrif­ast á til­settum tíma, fjórum árum, 60% sam­an­borið við 44% nú. Þetta kemur fram í Hvítbók um umbætur í mennta­málum. Í sömu bók kemur hins vegar einnig fram að rétt tæp 77% þeirra sem inn­rit­uð­ust á stúd­ents­brautir árið 2007 höfðu útskrif­ast sex árum seinna. Með­al­náms­tími þessa hóps var 4,1 ár. Þess má geta að tæp 60% þeirra sem skráðu sig í fram­halds­skóla árið 2007 skráðu sig á stúd­ents­brautir. Það er því ljóst að sé horft til stúd­ents­brauta næst mark­mið ráð­herra um að 60% nem­enda útskrif­ist á til­settum tíma og rúm­lega það.

Ekki verður séð hvernig stytt­ing­ar­á­form ráð­herra eigi fram að ganga án þess að auka álag og skerða und­ir­bún­ing fram­halds­skóla­nema fyrir háskóla­nám. Ef kenna á fjög­urra ára náms­efni á þremur árum hefur það í för með sér stór­aukið álag á nem­endur en það er nú þegar umtals­vert. Álag í námi hefur t.d. verið nefnt sem ein aðal­á­stæða brott­hvarfs úr fram­halds­skólum. Það er mikil þver­sögn hjá ráð­herra að ætla sér að auka álag á nem­endur og minnka brott­hvarf, sem vissu­lega er stórt vanda­mál, á sama tíma. Aukið námsá­lag leiðir til þess að nem­endur hafa minni tíma til að sinna öðrum þáttum s.s. tón­list­ar­námi, íþróttum og félags­lífi, en þessir þættir eru mjög mik­il­vægir í lífi fram­halds­skóla­nema. Samkvæmt áður­nefndri Hvítbók var atvinnu­þátt­taka ungs fólks á aldr­inum 18-24 ára rétt rúm 70% á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2013. Því er ljóst að hátt hlut­fall nem­enda vinnur með námi en aukið álag kemur sér sér­stak­lega illa fyrir þá ein­stak­linga.

Sé ætl­unin ekki að dreifa nám­inu yfir þrjú ár í stað fjög­urra heldur stytta nám nem­enda sem nemur einu ári er ljóst að nem­endur munu koma verr und­ir­búnir í háskóla en áður. Það getur varla verið mark­mið ráð­herra, eða hvað? Háskólar á Íslandi eru þegar farnir að bregð­ast við þessum nýju aðstæðum með því að leggja fyrir inn­töku­próf, t.d. í hag­fræði og lög­fræði.

[quote font="0" align="right"]"Þeir sem standa sig vel í námi eru þar látnir bíða eftir þeim sem ekki eiga eins auð­velt með að læra. Við teljum að auð­velt sé að auka sveigj­an­leika í grunn­skóla­kerf­inu og búa svo um hnút­ana að hægt verði að útskrif­ast á níu eða jafn­vel átta árum í stað tíu. Er ekki eðli­legra að meta nem­endur út frá náms­getu og þroska í stað ald­urs?"[/quote]

Stytting heild­ar­náms­tíma til stúd­ents­prófs er í sjálfu sér ekki slæm hug­mynd. Stað­reyndin er sú að skv. núver­andi kerfi eru íslensk ung­menni að jafn­aði um 14 ár að útskrif­ast með stúd­ents­próf en í flestum þeim löndum, sem við viljum bera okkur saman, við er þessi tími 13 ár. Stytting fram­halds­skól­ans er hins vegar ekki rétta leiðin til að ná sam­an­burð­ar­löndum okkar hvað náms­tíma varðar. Nánast ekk­ert hefur verið rætt um stytt­ingu grunn­skól­ans. Eins og staðan er nú eru allir skyld­aðir til að vera tíu ár í grunn­skóla. Þeir sem standa sig vel í námi eru þar látnir bíða eftir þeim sem ekki eiga eins auð­velt með að læra. Við teljum að auð­velt sé að auka sveigj­an­leika í grunn­skóla­kerf­inu og búa svo um hnút­ana að hægt verði að útskrif­ast á níu eða jafn­vel átta árum í stað tíu. Er ekki eðli­legra að meta nem­endur út frá náms­getu og þroska í stað ald­urs? Tíu ára grunn­skóla­nám á að standa þeim til boða sem það þurfa, en jafn­framt á að koma til móts við þá sem geta lokið því fyrr. Þannig yrði dregið úr lík­unum á upp­söfn­uðum náms­leiða og spornað við brott­hvarfi.

Með því að stytta alla fram­halds­skóla er val­frelsi nem­enda veru­lega skert. Í núver­andi kerfi hafa nem­endur val og geta útskrif­ast á þremur, þremur og hálfu eða fjórum árum. Nemendur eiga að hafa þetta val. Sé það vilji ung­mennis að fara hraðar í gegnum fram­halds­skól­ann ætti við­kom­andi að geta valið að fara í skóla þar sem boðið er upp á nám til stúd­ents­prófs á þremur árum. Á sama hátt ætti við­kom­andi að geta valið um skóla þar sem boðið er upp á nám til stúd­ents­prófs á fjórum árum.

Í ljósi þessa skorum við á ráð­herr­ann að end­ur­skoða, í fullri alvöru, ákvörðun sína um að stytta nám í öllum fram­halds­skólum lands­ins. Við teljum að hags­munir nem­enda ráði ekki för í þessu máli og að aðrar og betri leiðir séu færar til að ná þeim mark­miðum sem sett hafa verið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár